Minningarsíða - Kertin 2006
Kertin   2004  -  2005 

Kveiktu á kerti fyrir látinn ættingja eða vin sem þú vilt minnast.

Klikkaðu hér KVEIKJA Á KERTI  til að tendra ljós. Frí þjónusta fyrir alla.

Í sorg og í gleði ég senda mun ljós..................

Guðmundur Eiður Guðmundsson fæddur 20.Ágúst 1982 dáinn 16.Des guð blessi  þig elsku Gummi minn Eiður.  Vallý Skúladóttir.

Ég kveiki á kerti í minningu bróður míns, Þóris, sem lest í nóvember 2002 Ég hef saknað hans sárt. Andlát hans bar að á nokkurs fyrirvara. Eins lést fv. maðurinn minn í mars 2003, varð bráðkvaddur. Við áttum 39 yndisleg ár saman.
Kveðja frá systur og eiginkonu í 39 ár.

Sælir ég vil kveikja á kerti til minningar um Friðrik afa, Jóhannes Björnsson, Eyjólf Snæ og Guðrúnu konu hans, Cramer sem lést í mótorhjólaslysi, Örlyg Aron Sturlusson sem lést af slysförum, Guðmund sem lést í bílslysi milli sandgerðis og garðs, Ívar í garðinum, Helga föður hans krumma vinar Guð veiti fjölskyldum þeirra styrk, Takk fyrir, Friðrik Þór Bjarnason

Mig langar að kveikja á kerti fyrir ástkæran frænda minn sem lést í bílslysi 16.desember sl. Guðmund Eið Guðmundsson. Sigríður Helga.

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir elskulega mömmu mína Kristínu Árdal Antonsdóttir sem lést 29.des 2001, við söknum hennar endalaust mikið. kveðja þín dóttir Margrét Helga Jóhannsd.

24.12.06
Ég kveiki á kerti fyrir son minn Helga Fannar sem lést í bílslysi 06.03.05 og aðra ættingja og vini sem farnir eru. Ása.

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir litla strákinn minn hann Daða Snæ. Arnþór.

Elsku mamma mín nú eru tíu ár síðan þú hvarfst yfir móðuna miklu og ég sakna þín enn sárt.  Sendi þér hlýjar hugsanir. Ég elska þig. Þín dóttir Konný.

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir alla sem létu lífið í slysum á árinu. Megi góður Guð styrkja þá sem nú eiga við sárt að binda. Kristín.

Kveikja á kerti fyrir bróðir mömmu Almar Jónsson sem dó í síðustu viku megi guð vera með aðstandendum hans, viltu líka kveikja á kerti fyrir Egil Fannar en hann dó fyrir tveimur árum,einnig öðrum vinum og ættingjum.
 
kveðjur Óla,Tóti,Sigga,Gunni og Konný.

Mig langar að kveikja ljós hjá bróður mínum, sem lést snögglega þ. 1 . des 2002 hann átti við vanda að stríða með sitt hjarta Svo og áunnin sjúkdóm. Sem erfitt var að höndla... hvíli hann í friði........vonandi sá hann hið eilífa ljós....hann hét Símon Ásgeir,

Þrátt fyrir sinn breiskleika og veraldarvafstur sálin fékk þann frið sem óskað var eftir.. blessuð veri minning hans.

Ég vil kveikja á kerti fyrir ömmu mína sem dó 13 des 2004 úr krabbameini og fyrir Þórð frænda minn sem dó 24 júni 1984  guð blessi ykkur Stefanía Hrund.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir faðir minn Svan Skæringsson, móðir mína Unni Hólmfríði Sturludóttir, bróðir Sturla Svansson og bróðir Njörð Svansson. Þið eruð mér alltaf í huga og mikið saknað. Kveðja Bára Lísa Svansson.

ÈG VIL KVEIKJA À KERTI FYRIR ÖMMU MÌNA SEM DÒ 13 DES 2004 ÙR KRABBAMEINI OG FYRIR DODDA FRÆNDA MINN SEM DÒ 24 JÙN 1984 GUÐ VAKI YFIR ÞEIM OG FJÖLSKILDU ÞEIRA. STEFANIA HRUND 9 ARA.

Lifi ljósið hennar  Sjafnar og styrki  fólkið hennar.Kveðja Dísa

Ég vill kveikja á kerti fyrir æskuvin og skólabróður til margra ára hann Pétur Kjerúlf sem fæddist 10 apríl 1989, hann lést um miðjan maí 2006 eftir langa og stranga baráttu á fjöllum. Við vitum öll að hann svífur nú um á skýi í himnaríki með stóran,fallegan geislabaug og getum við öll verið stolt af stráknum.
Ég vill einnig kveikja ljós fyrir aðstandendur Péturs,og þá sérstaklega fjölskylduna hans og vinkonu mína hana Sædísi Sif,þetta er allt búið að vera svo erfitt fyrir þau.
Ég vill láta fylgja með lítið ljóð fyrir hann elsku Pétur okkar.


Ég í óbyggðum villtist um vorgafra nótt, og fann ekki leiðina heim.
Í hjarta mér óttinn, allt var svo hjótt.
Hugurinn leitaði heim.
Himinn og hamrar runnu í eitt
ég hvíldist við einmana stein.
Er sótti að mér svefninn, ég sofnaði rótt Þá í huganum kominn var heim.
Ef þú svefnvana vakir um vorbjarta nótt
og hugur þinn leitar til mín.
Ég sefa þin huga, svo sofnar þú rótt
í svefni kem ég til þín.


Elsku vinur,megi Guð geyma þig ávallt. Júlía Katrín.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Petru vinkonu mína og fjölskyldu hennar.  Hún var að missa föður sinn úr krabbameini. KV Guðrún.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir bróðir minn sem dó aðeins 29 ára úr krabbameini í nóvember.
 Kveðja Lilja.

Við viljum kveikja á kerti fyrir Valla sem að lést í hræðilegu bílslysi þann 8 desember síðastliðinn. Einnig viljum við kveikja á kerti fyrir aðstandendur hans. Hvíldu í friði Valli okkar og megi guð vera með fjölskyldu þinni á þessum erfiðu tímum. kær kveðja Sólbjört og fjölskylda.

Við viljum kveikja á kerti fyrir frænda, bróðir og mág okkar honum Ástmari sem að lést úr krabbameini þann 9 desember síðastliðinn. Eins viljum við kveikja á kerti fyrir Álfheiði dóttir hans sem að lést einnig úr krabbameini þann 5 nóvember 1997. kær kveðja. Gestur Már, Elín Helga, Sólbjört Sigríður, Gunnar Már, Snæbjört Sandra og Bergdís Eyland.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Þóreyju Guðmundsdóttir sem lést í bílslysi fyrr á árinu Guð veri með fjölskyldu hennar og öllum þeim sem eiga um sárt að binda.

Sólveig.

11.12. 2006.
 
Í kvöld ætla ég að kveikja á Kerti fyrir hann Valla vin minn, hans er sárt saknað. kveðja Birna Ármey

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Steinu Dóru, Val, Hafrúnu ,Hauk Pál. vini & aðra aðstandendur, sem öll misstu þau Valtý í hræðilegu býlsslysi Einnig langar mig að kveikja á kerti fyrir Hrefnu & Ásgeir, sem misstu 5 ára dóttur sína í bílslysi & sonur þeirra á langa sjúkrahúsvist fyrir höndum.

Þar sem englarnir syngja sefur þú.
Sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum,lifum í trú.
Að ljósið bjarta skæra.
Veki þig með sól að morgni.

Rakel Lind

ég vil kveikja á kerti fyrir elskulegan afa minn sem lést í mai 99, ömmu Indu sem lést í apríl 06 og elskulegan vin minn hann Stebba sem lést núna í nóvember Elsku Stebbi minn sakna þín gífurlega mikið.. Afi Doddi og Amma Inda ég sakna ykkar líka gífurlega mikið og byð fyrir ykkur öllum á hverju kvöldi vonandi hafið þið það sem allra best og við eigum eftir að hittast síðar...

ykkar Ása Birna

Ég vil kveikja á kerti fyrir Valtýr (Valla) sem lést aðfaranótt föstudags.

Hann var yndæll strákur og fínasti vinur. Ég á eftir að sakna þín ótrúlega mikið Valli minn og megi guðs englar vaka yfir þér elskan.. Leiðinlegt að þú hafir þurft að kveðja okkur svona ungur en eins og sagt er að þeir fara ungir sem guðirnir elska mest! Hvíl í friði elsku Valli minn.. Vil líka segja frá því að ég skirfaði um hann og annan vin minn á bloggið mitt og einhverjir hafa kvittað; www.blog.central.is/vilborghrefna Vil votta fjölskyldu Valla og vinum mína dýpstu samúð og vona að við getum komist í gegnum þessa hrikalegu sorg saman!

Vilborg Hrefna..

Mig langar að láta kveikja á kerti fyrir hann afa minn sem dó fyrir löngu. Sæunn Veigarsdóttir

Mig langar að kveikja á kerti fyrir alla aðstandendur hans valla sem lést í hræðilegu slisi. hans er sárt sakanð og megi guð gefa þeim sem þektu hann styrk og hugarró í sorg sinni.

Auður Rán

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir vini og vandamenn hans elsku Valla okkar sem að lést í hræðilegu bílslysi þann 8 desember. kv. Fjölskyldan á Austurgötu 10

Ég ætla að kveikja á kerti fyrir hann Valla vin minn frá unga aldri, sem lést í bílslysi í nótt, einnig fyrir Steinu Dóru, Valsa, Hafrúnu og Hauk Pál, missir þeirra er ólýsanlega mikill og bið ég guð um að vaka yfir þeim og stykja þau á þessum erfiðu tímum sem framundan eru með kærri kveðju, Birna Ármey Þorsteinsdóttir.

Við biðjum um að kveikt sé á kerti fyrir Kjartan Einar sem lést í bílslysi 30.júní 2002.
 

Hér saknar faðir, hér saknar móðir

og systkin döpur og vinir hljóðir,

því hann sem æskunnar yndi bar,

svo óvænt kallaður að heiman var.

                                                    ( Finnbogi J. Arndal)

 

Kveðja pabbi, mamma, Hulda, Helga & Todda

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Valla, sem lést í bílslysli í nótt.  Ég bið Guð að vaka yfir fjölskyldu hans og vinum og gefa þeim styrk til að takast á við sorg sína. 
Ásta Valdís

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elsku Steinu Dóru bróðurdóttur mína og fjölskyldu,sem í nótt misstu hann Valla sinn í hræðilegu bílslysi,megi góður guð styrkja þau öll sem misstu svo mikið.Didda

Mig langar til að það logi á ljósi fyrir bróðir minn hann Kalla sem mér þykir svo óendanlega vænt um. Hann lést 29 janúar 2000. Ég sakna hans mikið, alltof mikið, alltaf.
Þín systir Jóhanna

Við viljum tendra lítið ljós fyrir okkar ástkæra vin og félaga Guðmund Adam Ómarsson sem lést í blóma lísfins í bílslysi á Garðskagavegi þann 16 ágúst sl.
Þín er sárt saknað elsku vinur og þín verður minnst að eilífu.
Megi englar guðs ævinlega vaka yfir þér og þínum.
Ástar og saknaðarkveðjur
Ástþór og Heiðrún.

Megi kerti þetta færa eiginmanni mínum,foreldrum,systkinum, tengdaforeldrum og mági hið eilífa ljós sem ætíð lýsir upp veginn og einnig okkum sem eftir erum í jarðvistinni og söknum þeirra allra.

Ég vil láta lítið vers fylgja með frá mér samið af mér til okkar allra.


Hvar er upphaf hvar er endir ?
Hvernig fæ ég svar við því ?
Eilífðin þó oss á bendir
Að við hittumst öll á ný.

Kveðja Hjördís Björg.

Ég vil kveikja á kerti fyrir vin minn Reginn Þór sem lést þennan dag, 5.desember fyrir tveimur árum síðan. Elsku engillinn minn Þín er sárt saknað. Þín vinkona Tinna Torfadóttir

Mig langar að kveikja á kerti fyrir vin minn Egil Fannar, sem að í dag eru tvö ár síðan kvaddi þennan heim. Egill ég vil bara þú vitir að þótt ég hafi ekki fengið tíma til að kynnast þér eins vel og ég vildi að raunin hefði verið, þá sakna ég þín =*

8.12. 2006
Mig langar að kveikja á kerti fyrir elsku Steinu Dóru bróðurdóttur mína og fjölskyldu,sem í nótt misstu hann Valla sinn í hræðilegu bílslysi,megi góður guð styrkja þau öll sem misstu svo mikið.Didda.

Ég vil kveikja á kerti fyrir Sonju Werner Guðmundsdóttur sem lést 11. maí, 2006 af völdum krabbameins.
 
Ég man ekki mikið eftir þér, en ég man að ég var oft í heimsókn hjá þér með ömmu Tótu. Ég man eftir þegar þú bjóst í gráu blokkinni og bjóst í íbúðinni, þessari sem var við hliðinni á stiganum, á móti íbúðinni hennar ömmu og við fórum oft yfir til þín. Ég man sérstaklega eftir hurðarhúnunum sem mér fundust svo flottir, og þegar við löbbuðum inn í íbúðina þína var hilla með mynd af Steinunni, sem hafði látist fyrir ca. 10 árum eða svo (að mig minnir).
 
Eftir að við fluttum til Vestmannaeyja, minnkaði aðeins sambandið. En þú og amma voruð enn góðar vinkonur og ég sakna þín sárt.
 
Ríkey

Mig langar að byðja þig að kyeikja á kerti fyrir vinkonu mín Hrefnu sem fór frá okkur 30 sept 2006. Ég sakna þín, þín vinkona Inga.

Til minningar um minn gamla vin Hannes Gunnarsson. Þorgils.

Ég vil kveikja á kerti í minningu Brynleifs Tobíassonar, sem lést 2.nóvember 2006.
Sigríður Gunnarsdóttir.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elskulegan vin minn Örn Jóns Petersen, sem lést að heimili sínu í Sorø í Danmörku 19 07 2006 í faðmi sinnar elskulegu fjölskyldu, eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Megi Guð styrkja þig kæra Berglind og fjölskyldu þína.

K. kv. Heiðbrá

Mig langa að kveikja á kerti fyrir fyrrverandi eginkonu og barnsmóður Jóhönnu Olgu Zoéga Björnsdóttur Hjaltalín, sem var bráðkvödd 20.nóvember 2006. Megi allir heimsins englar varðveita þig Hanna mín og blessa.

Kveðja Jóhann Ögmundsson

Mig langar að kveikja á 2 kertum fyrir bestu vinkonu mina hana Sæunni Pálsdóttur sem lést 1 nóvember 2004 og ömmu mína sem lést 15 febrúar 2003. Ykkar er sárt saknað. Ykkar Berglind

Viltu vera svo góður að kveikja á kerti til minningar um okkar besta vin Garðar Pálsson. Drífa.

Mig langar  til þess að biðja þig um að kveikja á kerti fyrir Margréti Jónu, sem lést nú í haust, eftir margra ára hetjulega baráttu við krabbamein.  Einnig fyrir aðra látna ástvini, afa minn í Noregi sem lést nú í haust, Mommo, afa Hallgrím, ömmu Helgu og Dobbu.  Einnig fyrir son samstarfskonu minnar, Pétur Benediktsson, sem lést fyrr á þessu ári, litla Daða Snæ og dóttur Þórhildar.  Að lokum fyrir litlum englum systur minnar og vinkvenna, sem ekki fengu að dafna á meðal okkar.  Kveðja, Helga María.

 

Mig langar til þess að kveikja á kerti fyrir dóttur mína Sigrúnu Maren, sem varð bráðkvödd 05.05.2006, aðeins 2 ára gömul.  Elsku litli ástarengillinn minn, afi, amma, Mommo, Betta og allir hinir stóru englarnir passa þig þar til við finnum hvor aðra aftur.  Þín er svo sárt saknað en ég veit að hlutverk þitt í Englaríki er stórt og mikið.  Ég elska þig, þín mamma.

kveikja á kerti til minningar um alla mína ástvini og vini sem farnir eru guð blessi minningu þeirra. NN

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Berglindi Elínardóttur sem lést í byrjun nóvember. Blessuð sé minning fallegrar og góðrar stúlku. Kveðja, Eygló Ida

Mig langar að kveikja á kerti fyrir pabba minn sem lést 1998 og tengdamóður sem einnig er  látin. Ykkar er sárt saknað. Lulla.

Við kveikjum á kerti fyrir okkar elskulegu Ingibjörgu Hönnu Bergmann Sveindóttir sem lést 16. nóvember 2006. Sveinn, Halldóra og Bertha Þyrí.

'Eg kveiki á þessu kerti fyrir Öllu okkar sem lést þ.14. Des s.l. Hennar er sárt saknað. Guð gefi fjölskyldu hennar styrk í þessari miklu sorg. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur elsku Alla og fyrir að hafa verið til. NINNA

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir mömmu, Dúfu Kristjánsdóttur, sem lés 06 Október 2006. Hún hefði orðið 72 ára n.k. miðvikudag, 29.Nóvember.

Elsku mamma, krabbameinið heltók þig,  og þú þurftir að kveðja okkur. Ég sakna þín svo mikið og elska.

Þín dóttir Jóhanna

 

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elskulegan föður minn sem var bráðkvaddur á heimili sínu þann 12.nóvember 2006. Ég veit að honum þætti vænt um að ég kveikti kerti fyrir hann hér, því hann skoðaði þessa síðu oft.  Elsku pabbi minn þín er svo sárt saknað, við pössum mömmu og ömmu fyrir þig.  Kveðja þín Maríanna.

Mig langa að kveikja á kerti fyrir Þórólfur Friðþjófsson frá Skinnalón  Sem lést þann april 2004.Við sakna til þinn.Anna,Halldór og  Nikola María.

Mig langar að biðja þig að kveikja á kerti fyrir gamla vinkonu mína sem hét María Rósa sem lést 31 ágúst eftir erfið veikindi og fyrir móður hennar Brigitte Jónsson sem lést síðastliðin laugardag nú hafa þær mæðgur sameinast á ný. Megi allir englar himins vernda og blessa fólkið þeirra sem á um sárt að binda. PSJ.

Til minningar um yndislega föður og eiginmann, Bryngeir Guðjón Guðmundsson sem lést úr krabbameini aðeins 48 ára gamall. Við elskum þig öll. Með kveðju, Katrín Kristín Hallgrímsdóttir.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Hrönn sem missti drenginn sinn í dag 8/11. Ingunn H.

Ég vil kveikja á kerti fyrir Hrönn skrappvinkonu mína og hennar fjölskyldu. Í dag missti hún son sinn aðeins 17 ára gamlan. Megi góður Guð styrkja ykkur kæra fjölskylda á þessum erfiðu tímum.

Kveðja, Hulda M.

Elsku Hrönn
Manni verður orða vant við svona fréttir. Ég sendi þér mínar dýpstu samúðarkveðjur vegna skyndilegs og sviplegs fráfalls sonar þíns. Kær kveðja Pálína skrappari.

Elsku Hrönn og fjölskylda þetta kerti logar í minningu um son og bróður. Megi guð vera með ykkur í mikilli og djúpri sorg. Ég samhryggist ykkur innilega. Kv  Hanna Dóra.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Hrönn og fjölskyldu hennar, sem misstu son sinn 17 ára gamlan í dag 8 nóvember 2006.   Megi Guðs englar vaka og styrkja ykkur í þessari miklu sorg. ´
Heiðrún Níelsdóttir - skrappvinkona.

Mig langar að kveikja á kerti til minningar um hann Stebba Kalla.
Hann er farinn alltof snemma burtu frá okkur því miður en eins og við vitum þá gerast slysinn allt of oft. Hann var svo ljúfur og góður strákur og vildi allt fyrir alla gera ef til hans var leitað hann var einn af þeim sem kunni ekki að segja " NEI " . Hann á eina dóttir sem sér nú á eftir pabba sínum og saknar hans mjög mikið. Vonandi vakir hann yfir velferð hennar og framtíð hennar. Elsku Stebbi Kalli við verðum að sætta okkur við að þér er ætlað annað verkefni á öðrum stað en hér.

Takk fyrir allt. Kveðja Lóa.

Við viljum kveikja á þremur kertum til minningar um Einar Grétar Adólfsson frá Siglufirði, sem lést í Svíðjóð 8. septenber 2006.   Fedda og Jói

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Önnu Siggu sem lést mánudaginn 7.nóvember 2006.
 Ég vil einnig senda fjölskyldunni hennar, vinum og ættingjum innilegar samúðar kveðjur.     
                                                                                                                                                           Lilja G. Lange

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elsku frænda minn, Mána Magnússon, sem hefði orðið 18 ára núna 2. nóvember. Máni lést í hræðilegu bílslysi 07.08.05.
 
Ég vil einnig kveikja á kerti fyrir afa minn, Sigurgeir Tómasson sem hefði orðið 73 ára í dag, 6 nóvember.
Ykkar er mikið saknað!
 
Ég sit hér og hugsa
um þá gömlu góðu daga,
er þú varst mér hjá
mikið var gaman þá.
 
Nú ertu farinn,
en fylgir mér þó enn,
þú veist ekki hvað ég gæfi,
fyrir að hitta þig einu sinni enn.
                                          V.V.
Ykkar Valdís

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elsku frænku mina hana Guggu sem lést árið 2005 eftir baráttu við krabbamein. Gugga mín það líður valla sá dagur að maður hugsi ekki til þín og mér finnst ég hafa fengið að hafa þig svo stutt og strákarnir mínir spyrja reglulega um hana ömmu Guggu hvort Guð passi hana ekki á himninum. Elsku Gugga mín ég sakna þín mikið en ég veit að þú ert reglulega hjá okkur.

 Þín nafna Jóhanna

Mig langar að kveikja á kerti fyrir vin minn Pál Sveinbjörnsson og senda honum ljós og hlýju
Hann býr að Einibergi 17 Hafnarfirði. Kveðja Helena

Elsku Hjölli ,  takk fyrir allar góðu stundirnar sem þú gafst okkur, við geymum þær í hjörtum okkar
um ókomin ár.  Takk fyrir allt kveðja Inga og fjölskylda

Ég kveiki á kerti fyrir systur mína sem dó 13 oktober eftir erfið veikindi  eg kveð þig í hinsta sinn eg veit að þér líður betur núna. þinn bróðir     Þolli.

Ég kveikji á kerti fyrir Ninnu ömmu mína sem lést 16.júlí 2006. Elsku amma ég sakna þín. Stefanía

Ég vil Kveikja á kerti fyrir lang bestu ömmu mína Láru sem dó 1 september 2006, þín er sárt saknað.
Einnig vil ég kveikja kerti fyrir elsku Þórey mína sem dó 19janúar 2006 aðeins 17 ára gömul, besta vinkona sem maður gat hugsað sér. þín er sárt saknað.
 
Elska ykkur meira en allt..
 
Þótt ég sé látinn,
harmið mig ekki með tárum,
hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta.
Ég er svo nærri,
að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur,
en þegar þið hlægjið og syngjið með glöðum hug
lyftist sál mín upp í móti til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur,
og ég tek þátt í gleði ykkar.

 Ykkar Bryndís Helga !

Mig langar til að kveikja á kertum fyrir góða vini sem fallið hafa frá á þessu ári.
Júlíu Bergmanns sem lést í janúar eftir 7 ára baráttu við krabbamein.
Tómas Ýmir besti vinur minn lést af slysförum á Hofsjökli 25.02. elska þig kallinn minn..
Sesar þór félagi minn sem lést í umferðarslysi 04.03
 Lúðvíks Alfreðs sem lést af slysförum 02.04
Vinkona mín úr æsku Sigrún Kristinnsdóttir sem lést í umferðarslysi 02.07
og fyrir gamalli skólasystur Huldu sem lést af slysförum í danmörku.

Megi guð geyma þau öll ykkar er sárt saknað blessuð sé minning ykkar allra. Gulla

Mig langar til að tendra kerti fyrir Örnu litlu Ploder sem fór úr þessum heimi 14. október 2006  Hún var aðeins 4ra mánaða gömul. Einnig vil ég votta öllum þeim sem næst henni stóðu mína dýpstu samúð.
María  Gísladóttir. 

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Agnesi Unni Ingvarsdóttur frænku mína sem lést eftir mikla og harða baráttu úr krabbameini þann 20. desember 1999.  Elsku Agga mín, ég veit og trúi að þú sért búin að hitta Tom, manninn þinn og langömmu og langafa (mömmu þína og pabba). Ég ´þarf ekkert að óttast þegar minn tími kemur, því ég veit að þú tekur á móti mér opnum örmum. kv. HBI

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elskulegan mág minn Sveinn Magnússon sem lést 19.10 2006 eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Megi Guð styrkja þig elsku Rannveig og fjölskyldu þína. Sirrý systir

Fimmtudagur 19.10 2006.

Ég vil kveikja á kerti fyrir hann Pétur Kerúlf sem fannst látinn á sunnudaginn, eftir langa og stranga leit.
Minning þín lifir elsku Pétur.

Lítið ljós til minningar um elsku systur mína Báru Rut Sigurðardóttur sem lést í október 2006. Ég geymi þig í hjarta mínu. Dóra.

Fyrir Örn Egilsson og litinn óskýrðan son minn sem fæddist andvana fyrir 36 árum H. B

Mig langar til að fá kveikt á kerti fyrir frænda minn og nafna, Sæmund Bjarnason, sem drukknaði á jólum 1944.  Megi hann hvíla í friði. Þá langar mig að fá kveikt á kerti fyrir Ólöfu Guðjónsdóttur vinkonu mína sem lést í desember 2005. Og fyrir litlu Bryndísi Evu er lést 6. sept. sl. Megi ljósin ylja öllum þeim sem látnir eru og eftir lifa.
 
Með þökk, Sæunn Sigurlaugsdóttir

Hæ afi, langar að kveikja á kjerti fyrir þig, tæp 2 ár síðan þú fórst og ég sakna þín svo mikið, fór að hugsa um þig allt í einu, var að hlusta a jolalög :) , ég veit ....svolítið snemma í því en þú þekkir mig alveg :D, langaði að senda þessa kveðju til þín og segja að ég elska þig og sakna þín svo mikið. Hákon

Mig langar að kveikja á kerti í minningu elsku sonar míns sem fæddist andvana fyrir 10 árum síðar og unnusta dóttur minnar sem lést alltof ungur fyrir ári síðan. Megi minning ykkar lifa.

Kveðja Soffía

11.10 2006
Mig langar að kveikja á kerti fyrir Jónínu Þórðardóttur til heimilis að Skálatúni Mosfellsbæ, sem fór svo skyndilega frá okkur í morgun og sitjum við starfsfólkið og ekki síst heimilisfólkið eftir í lausu lofti, ekki áttum við von á þessu Jónína mín. Við kveðjum þig með trega og sökknuði. En við vitum, þú fylgir Rafni bróður þínum sem er ný farinn frá þér. Guð veri með þér elskan. Kv. Ólöf

Í dag, 10. október 2006 eru 2 ár elsku Jói minn síðan þú kvaddir okkur.
Alveg ótrúlegt hvað tímin flýgur áfram en samt finnst mér eins og þetta hafi bara allt gerst í gær.
Þessi tvö ár hafa verið ofsalega misjöfn hjá mér og bæði upp og niður...
En í dag... þá er svo erfitt að reyna að sætta sig við þetta, ég sakna þín svo mikið og elska þig alveg óendanlega mikið.
Ég hugsa til þín á hverjum degi og vildi óska að þú værir enn hérna hjá mér.
Ég ætla að kveikja á tveimur kertum fyrir þig í dag.

Hver getur siglt þó að blási ei byr,
bát sínum róið án ára?
Hver getur kvatt sinn kærasta vin,
kvatt hann án sárustu tára?

Ég get siglt þó að blási ei byr,
bát mínum róið án ára.
En ekki kvatt minn kærasta vin,
kvatt hann án sárustu tára.

Elsku hjartans ástin mín, ég kveð þig í bili með þessari vísu.
Þú veist ég mun alltaf elska þig og sakna þín.

Minning þín er ljósið í lífi mínu.

Þín unnusta Kristjana.
 

Mig langar að kveikja á kerti fyrir hana Mæju langömmu sem kvaddi okkur í gær 7.okt.2006

Hvíldu í friði elsku Mæja amma Kveðja Sandra Rut og fjölsk.

Mig langar til að tendra ljós fyrir elskulegan mannin minn, hann Skúla sem varð bráðkvaddur út á sjó þann 22 júní 05 þín er sárt saknað það líður ekki sú stund sem að þú ert í huga mínum. Ég veit að þú er og verður svo stoltur af litla barnabarninu okkar sem er alveg að fara að fæðast en jafnframt er svo sárt að vita að þú færð ekki að sjá hana eða fylgjast með henni hérna á jörðini.Takk fyrir allt og allt. Faðmlag og kossar til þín alltaf S.G.S.

 Okkur börnunum hans Skúla langar að tendra ljós fyrir hann við söknum þín elsku pabbi og söknum þín ekkert smá. Guðni Hanna Garðar og Guðmunda

 Tendra ljós fyrir hana Dóru vinkonu mína sem kvaddi þenna heim eftir erfið veikindi þann 25 sept 06 og til barnana hennar og fjölskyldu hennar og Rúna þú ert hetja sem vekst ekki frá beði móður þinnar!

Tendra ljós fyrir hana Diddu frænku sem kvaddi þann 27 sept 06 eftir erfið veikindi og til barnana hennar og barnabarna hennar . Meigi ljósið lýsa ykkur áfram veginn og okkur öllum sem eigum um sárt að binda. Þrúða

Mig langar að kveikja á kerti fyrir systur mína Sif Sighvatsdóttur sem lést þann 28. október 2003 og móður mína sem lést núna 29. september 2006. Tóta

Mér langar að kveikja á kerti fyrir elsku mömmu mína sem lést, eftir erfið og löng veikindi, þann 11. mars 2006, aðeins 41 árs gömul. Þín er sárt

saknað elsku mamma mín. Ég elska þig @--;-- Þín dóttir Sigga Lóa.

Þetta ljós lifir í minningu allra ættingja okkar og vina sem farin eru frá okkur Bbessuð sé minning þeirra allra. Birgir og Lilja

Okkur langar til að kveikja á kerti fyrir hann Braga sem að lést aðfaranótt 27 september 2006. Vertu sæll að sinni , við hittumst aftur Þú varst og ert drengur góður. Víðir, Ólöf og Daniel.

Ég vil kveikja á kerti fyrir hana Jónu frænku mína sem lést þann 10. september 2006 guð veri með dóttur þinni og styðji hana og styrkji. Þín frænka K.S.S

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir móður mína Margréti G. Margeirsdóttur sem lést á sl. ári. Hún hefði átt afmæli sl. sunnudag,  24. sept. Kveðja, Helga Ingibjörg.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Helga Hallgrímsson sem var bráðkvaddur núna nýverið.
Í leiðini vil ég senda ekkju hans, sonum og öðrum ættingjum samúðarkveðjur.
 
Starfsmaður sundlaugar akureyrar (I.M.B.)

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Unni Bettý Guðmundsdóttur, sem lést í bílslysi núna í lok ágúst síðast liðinn. Ég vil einnig senda fjölskyldunni hennar, vinum og ættingjum innilegar samúðar kveðjur.
 
Unnur, ég er viss um að þar sem þú ert núna ljómaru í eilífu ljósi. Þú varst yndisleg manneskja og heldur því öruglega áfram sem sál.
 
Slokknar á kerti í lífsins brunni,
sem átti en að loga..
Á kerti kveiki ég fyrir Unni,
reisi eilífan minningar boga.
 
Inga Margrét Benediktsdóttir

Elsku Máni Magnússon sem lést af slysförum þ. 07.08.05. Ef þú væri hjá okkur, þá mundum við fylgja ljósinu skæra á annan veg.

Við söknum þín svo mikið!
Ljósið skæra lýsir
um veginn okkar
sem við eigum að fara
þó viljum við um annan veg rata.

Ástar ástar kveðjur elsku Máni okkar.

Mig langar að kveika á kerti fyrir fallegri litilli hetju sem heitir Bryndís Eva en hún lést 7.sept. Líka langar mig að kveikja á kerti fyrir foreldra hennar og öllum aðstandendum. Megi Guð og allur hans englahópur vaka yfir þeim og varveita um ókomna tíð. Lena (ókunnug)

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Bryndísi Evu, foreldrum hennar og ættingjum öllum í þessari miklu sorg
 
kveðja brynhildur og co

Ég vil kveikja á kerti fyrir ástkæra unnusta minn Tómas Ýmir Óaskarsson sem lést af slysförum 25.02'06, hans er sárt saknað og ótrúlegt hvað hann var tekin fljótt frá okkur, en máltakið segir "þeir deyja ungir sem guðirnir elska". einnig vil ég minna á drenginn Jónas Atla sem var með honum í för vil að guð verndi hann og láti hann ná góðum bata...

Elska ykkur báða. Ásdís Hanna Bergvinsdóttir.

Ég vil kveikja á kerti fyrir frændsystkini mín, Salóme, Guðmund og Rebekku, sem ganga nú í gegnum eitt af því erfiðasta sem getur mætt manni á lífsleiðinni. Megi guð leiða þau í gegnum þessa erfiðu tíma. Andrea Sigurðardóttir

Ég vil kveikja á kerti fyrir litlu baráttuhetjuna hana Bryndísi Evu sem lést 7.september sl.Innilegar samúðarkveður til aðstandenda og megi guðs blessun styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Lóa

Við viljum biðja um að kveikt verði á kerti fyrir vin okkar,frænda og félaga, Magnús Magnússon  sem lést í umferðaslysi á Suðurlandsvegi laugardagskvöldið 16, sept. 2006. og biðjum um ljós  og styrk fyrir eftirlifandi ættingja.  Addi og Sjöfn.

Ég kveiki á kerti fyrir vin minn Mána Magnússon sem lést 7. ágúst 2005 í vélhjólaslysi aðeins 16 ára gamall. Ég veit að þú hvílir yfir okkur öllum og er þín sárt saknað. Takk fyrir frábæran tíma og allt sem við gerðum þennan stutta tíma sem við þekktumst. Hvíldu í friði kæri vinur!  
Kveðja Bragi Jónsson

Mig langar að kveikja á kerti fyrir pabba minn sem lést þann 12. júlí 2002. Ég mun alltaf sakna þín. Kveðja sísí

Ég vil tendra ljós til minningar um ástkæra kærasta minn Tómas Ýmir sem lest af slysförum 25.02’06 meigi ljósið lifa í þér. Og við sökknum þín sárt. Hugsum til þín á hverjum degi. Kveðja Ásdís Hanna

Mig langar að kveikja á kerti fyrir litlu stúlkunni henni Bryndísi Evu. Guð geymi hana móðir.

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir litlu dóttur mína, hún er búin að vera svo veik undanfarið. Ég bið til Guðs á hverju kvöldi um það að hún fari að lagast. Mig langar einnig að kveikja á kerti fyrir föður minn og bróður sem er í Himnaríki hjá Almáttuga Guði. Inga Hrönn

Ég vil Kveikja á kerti fyrir afa minn Jón, hann hefði verið 75 ára í dag 12 sept. Og ég vil líka kveikja kerti handa fjölskyldu Bryndísar Evu.

Samúðakveðjur. Kveðja Tinna

Ég vil kveikja á kerti fyrir litlu fallegu hetjunni henni Bryndísi Evu sem lést 7.september,eftir mikil veikindi.Votta fjölskyldu hennar samúðarkveðjur.Jóna Margrét.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir langömmu mína hana Helgu sem lést 8 september 2006 síðasliðinn. en nú ertu kominn til langafa Sveins og mig langar lika ða kveikja á kerti fyrir hann. mig langar líka að kveikja á kerti fyrir langafa Hall,Langömmu Línu,Langömmu Svönu,langafa Stefán,langafa Jóhann,langömmu Fanney sem er nú samt enn á lífi,langömmu Jennu og langömmu Stínu.Mig langar líka að kveikja á kerti fyrir afa Bigga sem er aðeins 67 ára gamall en hann er með alsæmer og ömmu Heiðu sem er algjör hetja og er bestust i heimi að hjálpa og hugsa um hann afa minn.

svo langar mig að kveikja á einu kerti í viðbót fyrir hana Sigrúnu vinkonu mína sem lést í bílslysi þann 2.júli 2006.

ykkar allra er sárt saknað. elska ykkur öll. ykkar Signa Hrönn Stefánsdóttir  11/09/06

Mér langar til að tendra ljós handa Braga frænda sem lést á hörmulegan hátt fyrir ári síðan eða þann 20. ágúst 2006. Megi hann hvíla í friði

Mér langar að kveikja á kerti fyrir Bryndísi Evu, lítil hetja sem lést 7. september. Samúðakveðjur til allra aðstandenda hennar. Erna Björk.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Bryndísi Evu, foreldrum hennar og ættingjum öllum. Guð veri með þeim.

Viltu kveikja á kerti fyrir góðan vin, hann Marinó Björnsson, sem lést í snjóflóði 10. apríl 2006. Það kemur ekki sá dagur sem að ég hugsa ekki um þig elsku vinur. Kveðja H.B.E.

Þetta kerti logar fyrir sólargeislann okkar Aríel Sól sem er Chihuahua hundur sem dó 18.08.2006. Við söknum þín svo sárt og munum við ávallt geyma þig í hjörtum okkar.
Þín fjölskylda Kolla, Villa, Dabbi, Ari, Jón Trausti og Tinna.

Viltu kveikja á kertum fyrir vinkonur mínar þær Helgu Sigurðardóttur, Önnu Kristinsdóttur og Vallý Jóhannsdóttur, sem allar létust úr krabbameini.  Góði Guð viltu sjá til þess að lækning finnist á þessum hræðilega sjúkdómi, áður en langt um líður. Ég bið þig góði Guð að geyma þessar vinkonur mínar, og sjá til þess að þeim líði vel þar sem þær eru. VS  

Ég vil kveikja á kerti fyrir mömmu mína sem lést 10.apríl 2004.
Hún var bæði mamma mín og besta vinkona mín. Elska þig mamma! =*

Úti er rökkur,
í hálsinum kökkur.
Hjarta mitt að bresta,
hvar er mín stöðuga festa?

Ég vildi að ég væri heima,
en ekki alltaf að gleyma.
Ávallt í hjarta mínu dvelur,
þó sorgin mig alla kvelur.

Minning þú orðin ert,
við því ekkert verður gert.
Hugur minn gleymir,
en hjartað, það reynir.

Ég leita, ég leita,
enn meiri streita.
Hvar ertu núna?
Hvar?
Hvar?
Ekkert svar...

Elska þig heitt,
því engu fær breytt!

Berglind.
 

Ég vil kveikja á kerti fyrir föður einn af minum bestum vinum hann var bráðkvaddur þann 28 águst. Hann hét Kristján Valdimarsson hann var ástríkur eiginmaður og faðir. Hann var einnig frábær vinnufélagi alltaf jafn gaman af honum hann átti sínu góðudaga og slæmu einsog við flest öll.

Ég votta mínu dýpstu samúð til fjölskyldu hans og megi guð gefa ykkur styrk á erfiðum tímun.

Linda Dögg Kristjánsdóttir

Mig langar að kveikja á kerti fyrir mömmu og pabba.
Pabbi tekinn frá okkur svo snöggt fyrir 19 árum og mamma núna fyrir 3 árum.Þetta grær, en örin skína enn í gegnum brosið.Vildi ég hefði lengri tíma með ykkur. Sakna ykkar svo mikið.
Einnig vil ég minnast hans Ívars litla frænda sem tók sitt eigið líf.
Vona þið bíðið eftir mér hinum megin,ég hlakka til að faðma ykkur á ný.
Kveðja Þórunn Sigurðardóttir
 

Um ókunnar örlagabrautir
fór óvigur sjúkdómaher.
Þú linaðir þolandans þrautir
og þerraðir tárin af mér.
 

Á kvöldin var sælt að sofna
við söng þinn um kærleika og frið.
Og vakna um vorbjarta morgna
í vöggunni þér við hlið.
 

Það var helgistund sólþyrstar sálar
að sitja og fræðast af þér.
Allt það sem mannlífið málar
í minningarsjoðina fer.
 

Vort líf er vanda bundið
þess verðgildi er.
Og allt sem ég fegurst hef fundið
fann ég við hjartað í þér.
 

Ó,elskaða milda móðir
mannlífsins göfgasta dís.
Ef allir yrðu eins góðir
væri umhverfið paradís.

 

Þetta sumar er búið að vera mörgum erfitt. Alltof mörg bílslys hafa verið á undanförnum vikum sem hafa tekið frá okkur ungt fólk í blóma lífsins. Nú nýverið létust tveir ungir menn á Reykjanesi, Jóhann og Guðmundur, þeir létu eftir sig fjölskyldu og vini sem eftir standa með sorg í hjarta. Um leið og ég vil tendra kerti til minningar um þá, vil ég votta þeim sem eiga um sárt að binda á þessum erfiðum tímum alla mína samúð, og bið að Guð gefi ykkur styrk í sorginni og að hann taki vel á móti þessum ungu drengjum.  Halldóra

Mig langar að biðja þig um að kveikja á kerti fyrir skólasystur,vinnufélaga og vinkonu mína hana Sigrúnu Kristinnsdóttur sem lést í bílslysi þann 2 júli 2006.

Hún var í blóma lífsins aðeins 20 ára gömul. Ég mun aldrey gleima þér Sigrún mín, og brosið,hláturinn,augun og augnhárin. Vá svona fallegir hlutir gleimast aldrey. Þú varst allgjör snillingur,þú ert með þeim fyndnöstu manneskjum sem ég hef kynnst;) ég bið guð um að styrjka fjölskyldu hennar. Þín vinkona Signa Hrönn

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir, Kolbrúnu Ólafsdóttur (Kollý), sem lést 15.ágúst s.l.
                                      Guð blessi minningu þína.
                                                               Gugga Kjartans.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir þá frændur Jóhann og Gumma. Guð veri með ykkur, og verndi fjölskydur ykkar og vini.... Kveðja Heiða Rafnsdóttir og fjölskylda

Ég bið um að sé kveikt á kerti fyrir fjölskyldu mína við fráfall föður míns. G/V

Mig langar til að láta kveikja á kerti fyrir æskuvin og félaga hann Herbert Granz. hann var fæddur 15. júní 1986 og hann lést þann 17. apríl 2006. Guð verði með þér alla tíð Hebbi minn. Bára.

Mér langar til að tendra ljós handa Braga frænda sem lést á hörmulegan hátt fyrir ári síðan eða þann 20. ágúst 2006. Megi hann hvíla í friði.

Ég vil kveikja á þessum tveimur kertum til að minnast þeirra jóa og Guðmund sem létust í bílslysi þann 16 águst 2006. Minning ykkar mun alltaf varðveitast. samúðar kveðjur til fjölskyldu ykkar.
Sigríður Margrét og Linda Dögg.

Við viljum kveikja kerti fyrir afa mínum sem dó 1 nóvember 2005 og hanns er sár saknað
Kveðja elisabet,kamilla.katrín og ívar

Til minningar um Sesar Þór Viðarsson. Kveðja frá Betu, Denna og Guðrúnu Margréti

Mig langar að kveikja á kerti fyrir fyrrum samstarfskonu mína sem lést í bílslysi í maí 2005. Hún hét Edda Sólrún Einarsdóttir. Úlfhildur

Viltu kveikja á kerti fyrir yndislega konu, ömmu mína Hrefnu Herbertsdóttur. Hvíl þú í friði elsku amma og mundu að ég hugsa til þín á hverjum degi. Ég sakna þín sárt, vildi óska að þú værir hér hjá okkur. Elska þig Steffy

Þegar ég sá þennan fallega vef þinn langar mig til að kveikja á kerti í minningu foreldara minna, Brynhildar Kristinsdóttur og Jóhanns Sigurðssonar, frá Göngustöðum í Svarfaðardal, bjuggu á Dalvík þegar jarðskjálftinn mikli varð. Með þessu langar mig að láta fylgja vísu sem pabbi orti 12 ágúst 2000, þá var hann 90 ára og orðinn veikur af krabbameini, hann lést 19 maí 2001.

Held létt kvíðinn áfram enn
enn um hríð þó stirðni gengi
veðurblíðan mótar menn
mína þýðir hjartastrengi.

Veröld hallar vali frá
vonir allar glæðir
múrar falla mönnum hjá
margan skalla græðir.

Kveðja  Davíð Jóhannsson

Okkur hjónin langar að kveikja á mörrgum kertum í minningu vina okkar og ástvina.
Blessuð sé minning þeirra allra

Kveðjur  -   Birgir og Lilja

Mig langar að kveikja á kerti fyrir litla frænda minn, hann Theodór Theodórsson sem lést 1993 aðeins 2 ára gamall.Ég elska þig og hugsa enn um þig á hverjum degi. Þín frænka Birna

Ég vil kveikja á kerti fyrir vin minn sem hefði orðið 20 ára 21.júlí síðastliðinn. Ég vona að honum líði vel þar sem hann er nú og að hann hafi fundið hamingjuna. Ég sakna þín sárt elsku engill.Kv. T.H.

Þetta kerti logar fyrir Lúlla sem lést í vinnuslysi á kárahnjúkja á þessu ári 2006, Hauk Kristófer og  Hauk Frey sem létust sem líka létust á þessu ári  Eva Björk

Kveiki á kerti fyrir ömmu Guðfinnu og afa Magnús á Ólafsfirði, og fyrir afa Hilmar í Reykjavik sem öll eru farin fyrir löngu.Sakna ykkar svo mikið. RMG

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Sigrúnu Óskarsdóttir sem lést úr krabbameini þann 25 Júlí 06 og votta ég allri hennar fjölskyldu samúðar kveðjur.Ég óska eftir að kveikja líka á kerti fyrir fósturföður minn Braga Sigurðson sem lést í október 2001.Kveðja Elva Hrönn

 

Okkur langar til að kveikja á kerti til að minnast sonar okkar sem lést fyrir fimm árum .
 
Hér saknar faðir, hér saknar móðir
og systkin döpur og vinir hljóðir,
því hann,sem æskunnar yndi bar,
svo óvænt kallaður að heiman var.
 
Þitt sólskinsbros ei blikar lengur,
þó brestur aldrei sá trausti strengur,
sem tengdi sál þína sálir við,
það sefar harminn og veitir frið.
 
Hinn mikli kraftur frá kærleiks hæðum
þig krýni friði og ljóssins gæðum.
Við felum anda þinn forsjón hans,
er flyst þú heim til hins bjarta lands.
                             
                     ( Finnbogi J. Arndal)
                    
Auður og Sveinn.

Þetta kerti logar fyrir elsku Afa minn,,! hann lést í bílslysi 14 nóvember 2003: D Hans er sárt saknað:* kv Aníta.

Mig langar að kveikja á keri fyrir móður mín Sigríði Þóroddsdóttur sem lést 15. júní sl.Megi ljósið lýsi þér elsku mamma. Þín dóttir Jóhanna.

Má ég biðja þig að kveikja á kerti fyrir litla son minn sem fæddist andvana 5. desember 2003. Ég sakna þín alltaf elsku Bjartur minn. Þín mamma

Jónatan, ljós þitt mun skína að eilífu !

Mig langar að kveikja á kerti fyrir pabba minn hann Hallberg Kristinsson sem dó úr krabbameini þann 2-10-2003. Þín er sárt saknað. Þín dóttir Jóhanna og afabörnin þín Margrét, Albert og Bjarki.

Ég vil kveikja á kerti fyrir barnið sem ég misti og fékk ekki að fæðast í þennan heim og einnig vil ég tendra ljós fyrir ættingja og vini sem farin eru . kveðja Bryndís

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir frænku mína, Sigrúnu Kristinsdóttur, sem lést í bílslysi 2. júlí 2006. Þín er sárt saknað, hvíl í friði elsku frænka. Elsku Gugga, Kiddi, Raggi, Ásta, Baldur og Ketill, megi Guð veita ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Anna Rut Steindórsdóttir. 

Mig langar að kveikja á 7 kértum.
1. Er fyrir hann Sesar Þór elsku frænda minn og vin sem dó í bílslisi í mars.
2. Er fyrir hana Liliju mína sem dó úr krabba í maí.
3. Er fyrir hann Birgir Bert ein af mínum bestu vinum í denn og hann lét lífið í Akureyrinni.
4. Er fyrir hana Sigrúnu mína þessa fallegu og góðu stelpu hún lést í hræðilegu bílslisi um síðustu helgi.
5. Er fyrir hann Heidda Snigil #10 mesta kappa í heimi. Hann lést í bifhjólaslisi um síðustu helgi.
6. Er fyrir litla hetju sem liggur núna á gjörgæsludeild á spítala fyrir sunnan og er í öndunarvél tæplega 2 ára.
7. Er fyrir móður þessarar litla engils. Sem stendur eins og klettur við hlið dóttur sinnar.
Til þessara aðila hugsa ég á hverjum degi og bið hann Guð að passa þau og varveita og stirkja fjölskildur þeyrra og vinui í að takast á við þetta allt.
Kv. Katla Sig.

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir ástríka foreldra okkar.  Sigurjón Kristjánsson og  Sigríði Sigurðardóttir. Við söknum ykkar mikið. Takk fyrir allt. Sigrún og Kristján.

Mig langar að kveikja á kerti í minningu Beckyar, bestu vinkonu í heimi! Það kemur enginn í staðinn fyrir þig þú lifir í hjarta mínu og minningin fær mig til að hlægja og gráta því söknuðurinn er svo sár. Ég veit að þú passar mig og mína og vakir yfir okkur dag og nótt eins og þú gerðir alltaf. Ég sakana þín elsku vinkona og vildi óska þess að þú væri ennþá hjá mér. En slysið varð og því verður ekki breytt. Takk fyrir allar stundirnar þær eru ómetanlegar. *When I Think of angels I think of You*  Þín vinkona að eilífu.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir hana móðursystur mína Dóru sem lést í gær í heimahúsi. Ég vona að henni líði vel þar sem hún er og sé loksins laus við kvalirnar sem hafa háð henni síðustu mánuði. Ég bið Guð að gefa fjölskyldu hennar styrk til að takast á við sorgina. Hvíldu í friði Dóra mín. Kveðja frá Grétu frænku og fjölskyldu

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir Pétur Kjerúlf, mág minn, sem lést um miðjan maí eftir mikla baráttu við móður náttúru. Pétur var yndislegur strákur og hann vildi öllum vel, hann tók öllum vel og var alltaf til í að kynnast nýju fólki. Hann var einungis 17 ára gamall þegar hann lést og hann átti eftir að upplifa svo mikið. Brosið hans Péturs glatti alla sem sáu það, hann var svo hress og frábær strákur. Elsku Pétur, minningarnar sem ég á mun ég varðveita að eilífu, mér finnst svo skrítið að ímynda mér heiminn án þín. En ég veit að við munum hittast á ný. Kær kveðja, Helena.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir vinkonu mína sem lést í bílslysi sunnudaginn 2.júlí 2006. Mig langar líka að kveikja á kerti fyrir frænda minn sem lést í mótorhjólaslysi sama dag. Ég votta fjölskyldum og vinum mína dýpstu samúð. Guð veri með ykkur. Kveðja Inga Huld

Ég vil kveikja á kerti fyrir fallegu ungu konuna sem var tekin frá okkur allt of snemma. Hún hét Sigrún Kristinsdóttir og var bara 20 ára. Guð geymi hana...

Ég vil kveikja á kerti fyrir Pétur Snær Pétursson nemanda í Grunnskólanum í Sandgerði. Hann lést miðvikudaginn 17 maí 2006 aðeins 14 ára að aldri meigi hann Hvíla í Friði og guð veri með fjölskyldu hans

Pétur Snær Pétursson
Svo elskaði guð heiminn
að hann gaf son sinn eingetinn
svo hver sem á hann trúir
glatist ekki heldur hafi eilíft líf

Fyrir öllu litlu sálunum í heiminum sem ekki hafa fengið að fæðast

Mig langar að kveikja á kerti fyrir hana Guðrúnu Gísladóttur  elskulega frænku mína sem dó á 17 júní. Og senda henni kvæðið sem ég bjó til.   Guðrún besta frænka mín, alltaf fín og falleg hvert sem hún fer.  Nú er hún til englanna komin, er mun fylgja okkur hvert sem er um alla framtíð.   Thelma Karen frænka 9,ára

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir góðan vin okkar og sálufélaga sem lést á aðfaranótt sunnudags. Minning þín mun stöðugt vera í huga okkar hvert sem við förum , takk fyrir að fá að hafa kynnst þér og eiga með þér ógleymanlegar stundir. Við munum alltaf sakna þín  ...Guð blessi þig..kv Jóna og börn.

Við viljum kveikja á kerti fyrir Guðrúnu Gísladóttur Arnarhrauni 11, Hafnarfirði sem lést 17, júní s.l. Megi ljósið umvefja þig.Guð blessi minningu þína. Addi og Sjöfn

Mig langar til þess að kveikja á kerti fyrir litla frænda minn, Pétur Snæ Pétursson, sem lést þann 17. maí 2006. Sofðu rótt elsku fallegi frændi og mega Guðs englar vaka yfir þér. Sjáumst síðar. Þín frænka, Ásta Rós

Ég kveiki á kerti fyrir Sesar frænda minn hann átti afmæli 16 júní og hann lést í bílslysi 4 mars síðast liðin :( en Elsku Sesar ég hugsa mikið til þín ,, minning þín er í ljósi í lífi mínu  ,, ÉG elska þig og mun alltaf gera :);***
ég vil kveikja á kerti handa Bigga berts þekkti hann ekki mikið en alveg nóg til að kveikja kerti handa honum og hugsa vel um hann :) guð geymi þig :);**

-Anna Margrét

Langar að kveikja á kerti fyrir lækninn minn Guðmund M. Jóhannss. sem var bráðkvddur annan í hvítasunnu, með þakklæti fyrir allt.

Kveðja, Guðbjörg

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir Friðbjörgu ömmu og mömmu, en hún átti afmæli þann 18. júní síðastliðinn, hún hefði orðið 63. ára. Við söknum þín mikið og vonum að þér líði vel hjá englunum og þeir passi þig vel. Tinna og Nína

Mig langar að kveikja á kerti til minningar um besta pabba í heimi sem ég sakna svo sárt.Hann lést eftir erfið veikindi árið 2002. Elsku pabbi þín er sárt saknað, ég veit að þú vakir yfir okkur. Þín dóttir Berglind Ósk.

Ég vil kveikja á kerti fyrir litla frænda minn hann Pétur Snær, sem lést 17 mai 2006. Ég elska þig svo mikið elsku litli engillinn minn. Þín frænka Karen Helga.

Guð leiði þig elsku drengurinn í gegnum ljóssins dyr og styrkji og styðji foreldra þína, systkini og aðra ættingja. Hjartans samúðarkveðjur til aðstandenda. Ragnhildur L. Guðmundsdóttir, Keflavík.

Ég vil kveikja á kerti fyrir elsku hjartans bróðir minn hann Pétur Snær sem lést 17 maí sl.aðeins 13 ára gamall.Ég sakna þín svo óendalega mikið hjartað mitt og ég elska þig alveg gífurlega mikið ástin mín.Ég mun aldrei gleyma elskan mín. Þín systir Guðrún

Ég sakna ömmu minnar langafa míns og frænku minnar og ég vill biðja að kveikja á 3 kertum fyrir þau. Kær kveðja Unnnur Hlíf Rúnarsdóttir 7ára

Mig langar að kveikja á kerti fyrir pabba minn, Hallberg Kristinsson sem dó úr krabbameini þann 2 okt.2003 Þín dóttir Jóhanna og afabörnin Margrét, Albert og Bjarki.

---------------------------------------
Ljós tendrað fyrir Báru móðursystur mína sem lést 6. júní 2006

Fræ í frosti sefur,
fönnin ei grandar því.
Drottins vald á vori
vekur það upp á ný.

Elska hans gefur öllu
líf og skjól.  
Guðs míns kærleiks kraftur,
kom þú og ver mín sól.

Stundum verður vetur
veröld hjartans í.
Láttu fræ þín lifa,
ljóssins Guð, í því.
Gef oss þitt sumar
sólu þinni frá.
Kristur, kom og sigra,
kom þú og ver oss hjá.

Sigurbjörn Einarsson

Hvíl í friði elsku Bára
Sara

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir hana Áslaugu mína. Það eru orðin sex ár frá því að hún yfirgaf okkur hér og það er allveg eins og það hafi gerst í gær. Elsku Áslaug mín ég elska þig alltaf og sakna þín sárt. Knús og kossar K.S.S

Mig langar að kveikja á kerti fyrir dóttur mína Jóhönnu Margréti Hlynsdóttur sem lést í hræðilegu slysi á Bíldudal 15 júlí 2004. Við verðum saman á ný elsku Jóhanna mín. Kveðja frá mömmu.

29. maí 2006.
Mig langar að kveikja á kerti fyrir Heiðrúnu og Óla og litla syni þeirra sem fæddist andvana í morgun.  Góði guð, gefðu þeim og þeirra nánustu styrk til að takast á við þennan hörmulega missi.
Þórey Dögg.

Okkur langar að kveikja á kerti í minningu um elsku lega pabba okkar Baldur Zóphaníasson
sem lést 3 Apríl 2006. Þín dóttir. Kolla,David,Baldur,Linda og Daníel.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir góðan vin sem lést í bílslysi 6.júní sl. Hann hér Hallgrímur Páll Guðmundsson kv  Íris

Elsku Dóri minn..........þín er sárt saknað. Sigga sakna ég lika. Megi ykkur liða sem best hvar sem þið eruð. Þann 17.Júni verður ár komið frá því að ég sá ykkur síðast............Elska þig Dóri minn og sakna alltaf jafn mikið. Þín ástkæra móðir Bessý.

Thetta kerti er til minningar um Jónatan. Hetjuverkin thín lifa Gud geymi thig.Heida frænka í dk

Mig langar að kveikja á kerti fyrir vini mína sem eru eiga um sárt að binda núna.
Guð veri með ykkur. Sirrý

27. maí 2006
Mig langar að kveikja á tveimur kertum fyrir tengdaforeldra mína sem tekin voru frá okkur allt of snemma.  Óli tengdapabbi hefði orðið 64 ára núna 16.apríl en hann lést þann 21. desember 2005 og Ólöf tengdamamma hefði orðið 61 árs þann 26.maí.  Hún lést 2.janúar 2004.  Ég vil senda þeim blessun og þá sérstaklega Óla sem ég veit að á erfitt núna þar sem hann er.  Ég bið ykkur öll að senda honum blátt ljós og biðja fyrir þeim báðum. 
 
Mig langar líka að þakka honum Júlla okkar, fyrir að gera okkur kleift að kveikja á kertum fyrir ástvini okkar.  Mér finnst það merkilegt að í höfuðborginni okkar allra er enginn staður fyrir þá sem eiga ástvini sem hvíla í gröfum úti á landi, til að koma á og kveikja á kertum fyrir þá.  Takk Júlli minn.
Þórey Dögg Jónsdóttir.

Langar að kveikja á kerti fyrir öllum í fjölskyldu minni og einnig ömmu minni og afa sem dóu með stuttu millibili fyrir fáeinum árum síðan. Einnig vil ég kveikja á kerti fyrir vin minn sem dó á jökklinum 25 feb '06. Ég vona að hann hafir sætt sig við örlög sín og öðlast skilning, það hef ég ekki gert, en ég reyni.

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir Jón Val Ómarsson sem lést 20. maí langt fyrir aldur fram, aðeins 19 ára gamall.Hugrún og Eyjólfur 

Ég vil kveikja á þessu kerti fyrir hann PABBA, minn besta vin! (9-apríl´04) Þín er sárt saknað……Þín dóttir að elífu Jobba….

Ég vil kveikja á kerti til minningar um lítinn engil Ósk Stefánsdóttir f. 25.03.2006 d. 25.03.2006 og föður minn Kristbjörn Björnsson f. 26.05.1932 d. 26.11.2003 þau hvíla saman í kirkjugarði Akureyrar - Lögmannshlíð. Ykkar er sárt saknað.  Sigrún

Ég vil kveikja á kerti fyrir vinkonu mína hana Höllu sem var að missa pabba sinn. Ég vil votta henni og hennar fjölskyldu mína dýpstu samúð. Vildi óska þess að það væri eitthvað sem að ég gæti gert til að minka sársaukann á þessum erfiða tíma. Muni ljósið leiða ykkur inn í framtíðina. Samúðarkveðjur Sibba,Dóri og Fanney Ósk.

Mig langar að kveikja á einu kerti til minningar um Jóntan Helga, sem lést úti á Kanarýeyjum þann 1 maí síðastliðinn eftir alvarlegt slys, einnig bið ég guð að stykja foreldra hans sem eru á heimleið með flugi með son sinn, eftir að vera búin að standa hliðin á syni sínum eftir hetjulega baráttu.
Kveðja. Guðrún I Ámundadóttir

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Bryndísi Evu og foreldrum hennar, þau eru sannkallaðar hetjur.

Langar til að kveikja á kerti fyrir son vinkonu minnar Sigurð Gíslason sem lést 15 april 2006 hvíl í friði . Inga Sig

Mig langar að kveikja á kerti fyrir faðir minn Sigurð Jónsson sem lést 1 mars 2005. Fyrir frænda minn Svanberg Inga Ragnarsson sem lést 25 april 2006. Hvíl í friði ykkar er sárt saknað .Inga Sig.

Mig langar ad kveikja a kerti handa ommu minni sem lest 4.april 2004 daginn eftir fermingu mina. takk amma fyrir ad na i ferminguna mina. sakna din og vona du hafir tad gott dar sem du ert!!
sakna din ditt barna barn rannveig lilja

Mig langar að kveikja á kerti fyrir hann Jónatan Rafson sem datt af svölum á Kanarí. Ég vil líka senda ljós til fjölskyldu hans. Takk fyrir Sigurbjörg Ólafasdóttir

26,04,2006
  Mig langar að kveikja á kerti fyrir pabba minn sem hét Guðbjartur og hann lést fyrir 29 árum. Foreldrum mannsins míns sem eru bæði látin. Ég óska eftir að kveikja ljós fyrir hana Hrafnhildi líf sem lést ekki nema 18 mán í maí 2003.Önnu ömmu minni og Bjarna svo líka Dísu ömmu og Óla afa .Þeirra er sárt saknað  enn við þökkum þeim fyrir samveruna kær kveðja Elva Hrönn

Mig langar að kveikja á kerti fyrir hana mágkonu mína og bróðir og börnin þeirra þrjú. En mamma hennar mákonu minnar ´hefur fengið hvíldina frá erfiðum sjúkdómi. Elsku Magga, Birgir, Smári, Bjartur, og Kristín Ósk, svo og Hallmundur, Tommi og Andrés og foreldrar hennar Kristínar. Megi algóður Guð gefa okkur öllum styrk til að læra að lifa með sorginni.

Megi ljósið eilífa lýsa Sesari Þór Viðarsyni. Vil ég votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð vegna fráfalls Sesars. Elsku Sesar megi þú hvíla í friði Megi guðir og englar vaka yfir þinni fallegu sál, ylja þér um hjartarætur og gera þig að ljósi heimsins Þín vinkona Jóhanna Elín Magnúsdóttir

Mig langar að biðja um kertaljós fyrir systur mína Sigrúnu Eddu Jónasdóttur
lést þann 19 ágúst 2005.  Og bróðir minn 'Asgeir Sigurð Jónasson sem lést 8 mars 1992,
Jesús sagði :" 'Eg er ljós heimsins.  Sá, sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins." Jóh. 8:12.  kveðja  Einar og Dagný

Mig langar að kveiki á þessu kerti til minningar um mömmu mína sem dó í apríl 2001.
Ég sakna þín sárt elsku mamma mín.Alda Heimisdóttir.

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir elsku pabba minn sem lést í febrúar 2005. Elsku pabbi minn sofðu rótt. Ég hugsa alltaf til þín. Ástarkveðja þín dóttir Elísabet

Ég vil kveikja á kerti fyrir Pétur Benediktsson sem lést nýlega aðeins 22 ára...megi hann hvíla í friði. Ég bið þig svo góði Guð um að hjálpa fjölskyldu hans og vinum að takast á við þessa erfiðleika. D

Ég vil kveikja á kerti fyrir góðan vin minn og hálf frænda EGIL FANNAR GRÉTARSSON en hann lést árið 5.desemder 2004. Þín er sárt saknað. Konkordía Guðrún Þórarinsdóttir

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elsku frænda minn hann Mána sem að lést í hörmulegu slysi þann 7. ágúst 2005. Þín er svo sárt saknað elsku Máni minn og erfitt að hugsa til að þú sért farinn. Þú fórst allt of fljótt elsku Máni minn, guð geymi þig. Þín frænka Dídí

Mig langar að kveikja á kerti fyrir hana litlu Birtu Ósk sem fékk ekki að vera með okkur hún dó í móðurkvið, hún hefði orði 2 ára 1 apríl ef hún hefði fengið að lifa,og litla dóttir mín hún kaja hefði fengið jafnöldru frænku vinkonu,guð gefi elskulegri Sirrý og karen Lenu styrk. Kveðja Alla ,Ísak og kaja

Ég vil kveikja á kerti fyrir elsku mömmu, Hrefna.

Ég vil kveikja á kerti fyrir Emelíu Rakel .Takk fyrir kv Jón Sverrir

Mig langar að kveikja á kerti til minningar um foreldra mína sem eru látnir hann 30.mars 1980
og hún 15 febrúar 2005. Og bróðir minn sem lést 15 janúar 1956 aðeins tveggja mánaða gamall.
Þau hvíla öll á sama stað. Blessuð sé minning þeirra. Kveðja Lára

Mig langar að kveikja á Kerti fyrir Gúgú ömmusystur mína sem lést í nótt. Hún hefur alltaf reynst mér og fjölskyldunni svo vel í erfiðleikum og ég sakna hennar sárt. Ég vil líka tileinka þetta kerti afa mínum Sigurði Þorgrímssyni og ömmu Kolbrúnu Guðmundsdóttur. Ég sakna ykkar allra svo mikið. Andrea.

Við viljum kveikja á kerti fyrir ástkæran son, bróður og frænda, Sesar Þór, sem lést í bílslysi þann 4. mars 2006. Minning þín er ljós í lífi okkar Mamma, Pabbi, Siggi, Didda, Sara og Viddi litli.

Við kveikjum hér á kerti fyrir Sesar Þór Viðarsson og fyrir foreldra hans , systkini og litla frænda
Guð veri með ykkur og gefi ykkur styrk. Þess óska ykkar frænkur
Fríða og Unnur Steina Knarran

Okkur langa að tendra ljós handa ungum dreng sem dó fyrir aldur fram í bílslysi þann 4 mars 2006.Hann hét Sesar Þór Viðarsson,megi hann hvíla í friði.

25. apríl 2006.
Mig langar að kveikja á kerti fyrir litla bróður minn Hann Þórð Willardsson.  Núna 25 apríl eru 2 ár síðan ég missti hann og ég get ekki sagt að tíminn lækni þessi sár :-(                   
 
Mig verkjar enn í hjartað á hverjum degi af söknuði.  25 apríl kveiki ég á kerti í minningu hans.
 
Birna Willard

Þetta kerti er til minningar um pabba minn sem dó í júlí 1999. Og elsku ömmu mína sem kvaddi þennan heim í febrúar 2004. Einnig afa minn sem hefði orðið 100 ára núna í maí 2006.

Með þökk fyrir  Þórður.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir hana litlu Bryndísi Evu sem er svo mikil hetja og líka foreldrar hennar

Kona sem hugsar til þeirra.

Kveikja á kerti fyrir ömmur mínar afa mína tengdaforeldra og alla ættinja og vini. Sólveig

Ég vil kveikja á kerti í minningu gamals vinar, Sigurðar Geirs Ólafssonar, sem að lést 17 apríl 2006. Megi Guð vernda hann og varðveita sálu hans.  Enginn ræður sínum næturstað .  Hvíl í friði kæri vinur.    Þar til við hittumst næst...   Vinkona

Nú eru tvö ár síðan þú fórst í þína síðusu vélsleðaferð og komst ekki á lífi til baka. Flesta daga hugsum við til þín með söknuði og sorg. Þetta ætlar að verða ótrúlega erfinn að læra að lifa með þessuelsku Mummi minn, en við vonum að þér líði vel og guð varðveiti þig vel. Kveðja frá ömmu Mæju og afa Gvendi. (Apríl 2006)

Mig langar að kveikja á kerti fyrir ömmu mína, Selmu sem lést 30. apríl 2005, en hún hefði orðið 62 ára núna 16. apríl.  Við söknum þín ósköp mikið, það er allt svo eitthvað hljóðlátt eftir að þú fórst en þú lifir í hjarta mínu. Hlakka til þegar við hittumst næst og til hamingju með afmælið. Þúsund kossar frá mér, Sverri, Aroni Inga sem saknar þín ofsa mikið, Skúla Dan og litlu nöfnu okkar Selmu Dögg.
 
Elsku Amma
Þó svo að þú sért farin mér frá,
ertu alltaf í huga mér.
'Eg er þakklát fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir mig.

'Eg er þakklát fyrir að með þinni
hjálp varð ég sú manneskja
sem ég er í dag,
Amma, engin orð geta lýst
því hvað þú varst og
ert mér mikilvæg.

Þín er sárt saknað. 'Eg elska þig, amma.Þín Lena

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Marinó, sem lést í slysi 10. apríl, 24ra ára gamall. Mig langar að kveikja á kerti fyrir foreldra hans, sem hafa misst svo mikið, systkini, ættingja og vini, sérstaklega þeim sem var með honum þegar slysið átti sér stað. Megi allir sem hafa misst og eiga um sárt að binda öðlast frið. Kveðja frá Fáskrúðsfirðingi í Reykjavík.  KVEÐJA ÁSTA

Ég bið þig í drottins nafni að kveikja á kerti fyrir ástkærann föður minn, Sigurð Þröst Hjaltason sem lést sumarið 2005 eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Megi ljósið og kærleikurinn umliggja hann fólkið hans og dýrð drottins vaka yfir okkur öllum á komandi tímum. Vil ég þakka föður mínum fyrir allt það sem hann gerði fyrir mig, alla hlýjuna, traustið, vináttunna og föðurástina. Takk fyrir allt elsku pabbi. Víðir Þór Þrastarson

Fyrir alla mína ættingja sem farnir eru Með fyrirfram þökk Lára Inga

Mig langar til þess að minnast ættingja sem farnir eru og bið Guð að geyma þá þangað til við sameinumst að nýju. Einnig vil ég biðja Guð að styrkja þá sem misst hafa sína af völdum slysa og sjúkdóma undanfarið.

Okkur langar til að kveikja á kerti fyrir hann Sesar Þór Viðarsson sem að lést í bílslysi 4. mars síðastliðinn, langt fyrir aldur fram. Hvíldu í friði kæri vinur. kær kveðja Anna, Hallur og fjölskylda

Mig langar að kveikja á kerti fyrir foreldra mína sem eru látinn hún 15/2 2005 hann 30/3 1980 og litla bróðir minn þau hvíla öll á sama stað. Hera

Ég vil kveikja á kerti fyrir látinn vin minn og reglubróðir Halldór Guðmundsson sem jarðsunginn verður næstkomandi laugardag 11. mars frá Selfosskirkju

Viltu kveikja á kerti fyrir hann Sesar Þór frænda sem lést í umferðaslysi þann 4 mars síðasliðin og fyrir henni Elísabetu systir minni/mákonu og frænku sem hefði orðið 18 ára í dag en hún dó í bílslysi þann 24 júní 2004...  Kveðja Gauja,Víglundur, Unnur Lilja, Bjarni Brynjar og Elísabet Líf

fyrir Sesar Þór sem lést í hörmulegu bílslysi 4. mars 2006 og alla aðra sem hafa látist í umferðinni á árinu. Megi kertaljósið vera aðstandendum þeirra vera ljós guðs í gegnum sorgina.

Núna eru tvö ár frá því þú fórst frá okkur á annan stað elsku Mummi minn og mikið hef ég hugsað til þín og mikið hef ég saknað þín. Mig langar að kveikja á þessu kerti handa þér og þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum. Ég vona að þér gangi vel kveðja Sigga

Ég vil kveikja á Kerti til minningar um Sesar Þór Viðarsson.. elsku besta vin minn..;* Strákur sem var mér sembróðir hann kvað þennan  stranga heim alltof ungur aðeisn 20 ára að aldri ;* Þú varst allveg frábær vinur og minning þín mun lifa í hjarta mínu<3 að eilífu.. þú ert verndarengillinn minn..;* þú ert æðislegur og vá elsku yndið mitt(K)(L) þú ert dýrmætasti engilinn á himninum..;* og þú munt vaka vel yfir okkur!! ég elska þig sesar..
 
Blessuð sé minning þín félagi..
Sesar Þór Viðarsson
f. 16.06.86 - d. 04.03.06

Mig langar að kveikja á kerti fyrir frænda minn hann Hjálm son hennar Boggu frænku, honum fannst ekki þess vert að lifa sínu lífi lengur þannig hann kvaddi þennan heim fyrir fullt og allt þann 2 mars síðastliðinn......... Einnig langar mig að kveikja á kerti fyrir móðurbróður minn hann Sigurð Þröst Hjaltason sem lést þann 13 júní 2005 eftir baráttu við þann ljóta sjúkdóm Krabbamein. Einnig á hún föður amma mín hug minn allan og ég sakna hennar mjög mikið, mig langar að tendra á kerti til minningar um hana en hún lést þann 27 janúar 2004.......ykkar Guðrún I Ámundadóttir og synir.

Halló mér langaði að kveikja á kerti fyrir hann Sesar sem lést í bílslysinu í nótt(04.03.06) á Akureyri  Einnig fyrir hann Tómas sem lést seinustu helgi upp á Hofsjökli. Fyrir nokkru missti gamall skólabróðir minn son sinn Daða Snæ aðeins 8 mánaða gamlan og langar mig líka að kveikj á kerti fyrir hann. Megi guð styrkja og vera með fjölskyldu og vinum þessara drengja á svona erfiðum tímum. SEE

Mig langar að kveikja á kerti fyrir ömmu mína sem lést árið 2004. Hennar er sárt saknað.
Anna Andrésdóttir

Viltu kveikja á kerti fyrir Tómas Ými sem lést af slysförum laugardaginn 25 febrúar og biðja guð að styrkja unnustu hans, foreldra, tengdaforeldra og aðra ástvini við þennan mikla missi.
Óla, Tóti, Sigga, Gunni og Konný  Þórarinn og Ólöf  Hálsi Fnjóskadal.

Mig langar að kveikja á kerti til minningar um Nanný frænku sem lést í morgun eftir stutta baráttu við krabbamein. Nanný mín takk fyrir allt og það gladdi mig mjög mikið að hafa getað kvatt þig fyrir sunnan á þriðjudaginn, ég mun biðja fyrir þér og börnum þínum Önnu og Einsa.
Þín Agnes Þ

Ég vil kveikja á kerti fyrir tvíburasystur minnar Bjarnfríðar Guðjónsdottur sem lést 24 des 05 og sakna eg hennar mikið. Elska þig elsku systir.þín systir Þóra.

Ég kveikji á kerti fyrir Fríðu systur mína sem dó 24 des 2005.Ég sakna þín og hugsa til þín. Kveðja Erna

Ég vil kveikja á kerti fyrir frænda minn Tómas Ými Óskarsson sem lést í slysi á Hofsjökli 25.02.06
Ég bið guð um að gefa fjölskyldunni hans styrk.   Helga Árnadóttir.

Þetta kerti er til minningar um systur mína Fríðu Guðjónsd. sem dó 24 des.2005.Ég sakna þín.Kveðja frá Ernu systir

Ég kveikji á kerti til minningjar um tengdamóður mína Ljós þitt lifi Þín tengdadóttir

ég vil kveikja á kerti fyrir þann sem slasaðist upp á jökli í dag 26.02 2006 og einnig þann sem lést
sandy

Ég kveiki á kerti fyrir bróður minn, Kristinn  Eiríksson, sem hefði orðið 60 ára þann 18.feb. sl.Ég sakna þín ennþá, Kiddi minn, og bið fyrir þér.

Mig langar að tendra á kerti því í dag lést Viðar frændi og mig langar líka að tendra kerti fyrir alla hans aðstandendur.

Mig langar líka að tendra kerti fyrir mjög góða konu semég ætla ekki að nafgreina en hún er búin að vera að berjast við krabbamein í mörg ár. Áfram þú stendur þig vel

Ætla að byðja ykkur um að tendra á kerti fyrir stelpuna sem lenti í bílslysinu og fyrir Viðari frænda sem lést í gær, blesu' sé minning hans. Takk takk Valdís

Viltu kveikja á kerti fyrir litla engilinn minn sem hefði orðið 1 árs núna ef hann hefði fæðst lifandi. Ég sakna þín óendalega mikið... ástarkveðja mamma

Ég vil kveikja á kerti vegna ungu stúlkunnar sem lenti í bílslysi í Garðabæ og berst nú fyrir lífi sínu. Megi Drottinn faðir okkar senda engla sína til hennar og fjölskyldu og veita þeim styrk.

Langar að kveikja á kerti fyrir litla frænku mína, sem fékk nafnið kolbrún Helga, guð veri með þér litla prinsessa. kv.Sunna.

Til Minningar um móðir mína sem lést þann 15.2.2005 og Föður minn sem lést fyrir tæpum 26 árum og Bróðir minn sem lést aðeins 2 mánaða gamall þau hvíla öll á sama stað. Hera

'Eg vil kveikja á kerti fyrir Jónu langömmu og ollý langömmu,ég sakna ykkar mikið en veit að núna líður ykkur vel.Einnig vil ég kveikja á kerti fyrir Halldór Hörð sem lenti í brunanum í áhaldarhúsinu á garðinum 16ágúst 1998 ég sakna þín.Svo vil ég kveikja á kerti fyrir hana Bryndísi Evu sem berst fyrir lífi sínu á barnaspítalanum.kv Birgitta Gunnarsd

Mig langar að kveikja á kerti fyrir mömmu mina, Guðrúnu Ragnarsdóttur, sem að lést þann 27.júlí.2003 á heimili sínu. Þá aðeins 44 ára að aldri, hún var búin að berjast við MS-veikina í 17 ár. Við sem eftir sitjum söknum hennar sárlega, og vonum að hún bíði eftir okkur í himnaríki.

 Elsku mamma, það líður ekki sá dagur sem að ég hugsa ekki til þín, og í hvert skipti sem að eitthvað merkilegt gerist í okkar lífi, vildi ég óska að þú værir ennþá hérna hjá okkur til að gleðjast með okkur. Ennfremur vildi ég að þú hefðir lifað nógu lengi til að kynnast yngri dótturdóttur þinni, þú hefðir orðið svo stolt af henni, eins og af þeirri eldri. Sú eldri talar ennþá um þig, og saknar þín sárt. Þær líkjast þér meira og meira með hverjum deginum sem að líður, þannig að vissu leyti ertu ennþá hjá okkur.  Með söknuð í hjarta og tár á hvarmi.   Þín dóttir,  Maria Lind.

Fyrir litlu stílkunni úr Keflavik,eins fyrir stúlkunni sem varð fyrir bíl í gær hún er 15 ára gömul, Með fyrifram þökk. GG

ég vil kveikja á kerti fyrir Þóru ömmu sem var besta kona í heimi og fyrir stefáni afa mínum sem var alltaf svo góður og hinum afa mínum sem hét líka Stefán og var svo yndislegur afi. Ég vil líka kveikja á kerti fyrir Nonna frænda, dæja frænda, Björgvini frænda, Hartmann, Kjartann og Björgvin Davíð og svo fyrir hönd kærasta minns vil ég kveikja á kerti handa mömmu hans Júlíönu og systkynum hans Didda og Möggu sem ég fékk aldrei að kynnast og vinum hans Didda og Binna. Við vonum að þið séuð hér hjá okkur.

Í dag 14.02´06 vil ég kveikja á kerti fyrir bróður mínum...ekki af neinni sérstakri ástæðu
sakna hans bara..Rakel

Ég vil biðja þig um að kveikja á kerti fyrir frænda okkar Sigurgeir Jónsson sem dó sunnudaginn 5. Febrúar. Takk Geiri frændi fyrir kærleik þinn og hlýju. Kristín og fjölskylda.

dag hefði hann Kristófer orðið 2 ára ef hann hefði lifað, hans verður minnst sem lítils engils sem átti sína daga hér hjá okkur sem hetja, ég vona að foreldrar hans hafi það gott og fagni dagsins sem sannri hetjudáð af þeirra og hans hálfu enda barðist hann eins og hetja, kv Hadda G

Í dag 08.02.2006 hefði Daníel bróðir minn orðið 42 ára í tilefni þess þá kveikji  ég á kerti fyrir hann og einnig fyrir aðra ástvini sem eru farnir. Minning ykkar lifir í  hjörtum okkar. Heiða

Ég kveiki hér á kerti fyrir hann Hjálmar, hvíl í friði kæri vinur.

mig langar til að kveikja á kerti fyrir foreldra mína Hauk og guðlaugu frá SÆBÓLI MINNING IKKAR LIFIR Í HJARTA MINU IKKAR DÓTTIR HJÖRDÍS ,GUÐ BLESSI ALLA ÞÁ SEM EIGA UM SÁRT AÐ BINDA

Viltu kveykja á kerti fyrir foreldra mína sem látnir eru fyrir löngu síðan, eða 27 árum.
Ég hef staðið í ýmsum smá erfiðleikum undanfarna mánuði og finn svo sterkt fyrir því að þau eru að hjálpa mér og mig langar svo að þakka þeim. Þau hétu:  Sigþór Marinósson og  Jónína Guðmunda Hallgrímsdóttir.    Kær kveðja og Guð launi  fyrir mig. María Sigþórsdóttir.

Geturðu kveikt á kerti fyrir 8 mánaða gamlan strák Daða Snær kveðja Ásta Salný og fjölskylda

Ég vil kveikja á kerti fyrir Júlíu frænku sem dó eftir baráttu við krabbamein elsku Júlía núna líður þér vel og þarft ekki að berjast svona
kærar kveðjur Aníta Addi og Patti

Ég vil kveikja á kerti fyrir Júlíu Bergmannsdóttur hún var búin að berjast við krabbamein í 7 og hálft ár,hún lést fyrir 2 dögum minning sannkallaðar hetju lifir endalaust Takk fyrir.

ég kveiki á kerti fyrir afa mína og ömmur tvær, einnig Drífu mína góðu og Hörpu, minning þeirra er ljós í lífi mínu og ég hugsa til þeirra á hverjum degi. Knús Guðrún

 

Viltu kveikja á kerti fyrir alla okkar ástvini sem eru farnir héðan.  Þeirra er sárt saknað. Dollý og Þór

Viltu kveikja á kerti fyrir Júlíu Bergmanns sem lést í gærkvöldi eftir 7 ára baráttu við krabbamein. Ég bið Guð að styrkja Jóa, Ragga og Berglindi í sorginni

Ég vil kveikja á kerti fyrir litlu sytsur mína sem lést í hörmulegu bílslysi þann 19. janúar. 2006 á Hnífsdalsveginum . Þórey heitir þessi dásamlega stúlka sem við fjölskylan hennar fengum að hafa í tæplega 18.
ár. Hún var ábyggilega engill sendur af himnum til þess að kenna okkur hvað er mikilvægt í lífinu.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Ömmu Söru á Siglufirði. Hún lést fyrir um 1 ár síðan. Hún var góð og yndisleg út í gegn

Mig langar að kveikja á kerti fyrir ömmu og afa í Hrannó (Hlíf) og ætla að biðja þau um að halda í hendina hennar Þóreyjar þegar hún kemur til þeirra.

Rakel Guðmundsdóttir.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir afa minn sem sofnaði fyrir nokkrum árum. Elsku afi Sigfús, þú ert besti maður sem ég veit um og ég elska þig svo mikið alltaf alla daga og hugsa svo oft til þín. Ömmu gengur vel að vera til en ég veit að hún saknar þín alltaf jafn sárt. Ég skal hugsa vel um hana þangað til hún fer yfir til þín elsku afi. Takk fyrir að vera alltaf hjá mér, það er alltaf jafn gott þegar ég vakna á morgnana og hef dreymt draum um þig elsku besti afi. Þú ert hjá mér alltaf, ég finn það og styrkurinn í þeirri tilfinningu er ómetanlegur. Takk fyrir allt. Æskuminningarnar sem ég á með þér eru eins og gull í hjartanu mínu og verða þar alltaf. Elska þig svo mikið, sofðu vel afi minn og guð geymi þig alltaf. Þín Hulda Jónsdóttir Tölgyes

Ég vil kveikja á kerti fyrir litla bróðir mínum sem dó 15 Nóvember 1999. Hann dó við fæðingu.. Síðan vil ég líka kveikja á kerti fyrir afa minn sem dó 18 Maí 2005.. Hann dó úr krabbameini.. Ég sakna þeirra svo mikið.. Ykkar systir og barnabarn Ósk Hjartardóttir :*:*

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elskulega foreldra mína, Ólöfu d. 02.01.04 og Óla d. 22.12.05  sem létust alltof ung. Elsku mamma og pabbi, ég sakna ykkar óendanlega mikið. Guð geymi ykkur.

Ykkar dóttir Kristín.

Ég vil kveikja á kerti fyrir Petru frænku mína sem hefði orðið 95 ára í dag 20. janúar 2006 ef hún hefði lifað. Ég vona að þér líði vel og þið mamma passi hvor aðra, ég sakna ykkar beggja kveðja Nína.

Við viljum kveikja á kerti fyrir Bryndísi Evu Hjörleifsdóttir hún berst fyrir lífi sínu á barnaspítala hringsins. Kveðja Sigga Vigga, Ívar og dætur

Við kveikjum á kerti fyrir hann Mána okkar, sem var tekinn alltof snemma frá okkur. Máni lést í bifhjólaslysi þann 7. ágúst 2005. Elsku Máni þín er sárt saknað af okkur, við vitum að þú vakir yfir okkur öllum og hugsar til okkar eins og við hugsum til þín. Minning er ljós lífsins hjá okkur, takk fyrir allt sem við áttum saman með þér. Pabbi, Mamma, Dísa R, Simmi og Sólveig     

Við kveikjum á kerti fyrir hann Mána okkar, sem fór alltof snemma frá okkur. Þín er sárt saknað, við vitum að þú vakir yfir okkur öllum. Minning er ljós lífsins hjá okkur, takk fyrir allt sem við áttum saman með þér. Pabbi, Mamma, Dísa R, Simmi og Sólveig     

Ég kveikji á kerti till minnigjar tendamömmu minnar um leið bið ég þig góði guð að blessa lítn veikan dreng sem liggur nú á landspitalanum mikið veikur. Ég bið þig guð að hjálpa vinkonu mömmu sem er að berjast við krabbamein, gefðu henni styrk að verða frisk JB

Ég vil kveikja á kerti fyrir Elvar Fannar. Sakna þín rosalega mikið. Sunna

Ég kveiki á kerti fyir mömmu mína Aldísi Einarsdóttur sem var einstök kona og hennar er sárt saknað en hún lést 16.júni 2005. Einnig vil eg kveikja á kerti fyir bróður minn Einar Örn Birgis sem lést 08.nóvember 2000 við hugsum alltaf til ykkar og geymum fallega minnigu ykkar í hjarta okkar.
Kv Guddy

Langar að kveikja á kerti sem þakklæti fyrir svo margt sem ég fékk á síðasta ári og kann svo vel að meta í dag. Einnig vil ég að kertið lýsi þeim sem eiga um sárt að binda.Þyrí

Viltu kveikja á kerti fyrir afa minn Sigurpál Ísfjörð Aðalsteinsson sem lést 17 desember 2005, elsku afi Palli ég hugsa alltaf til þín..þín Ása Birna

Ljósið logar til minngar um þá sem hafa látist nú í byrjun árs 2006. Hlýja strauma sendi ég til Herdísar sem missti manninn sinn rétt fyrir fjórum klst. síðan. Hann hét Árni Jón og var með heilaæxli. Hlýjar kveðjur sendi ég einnig þeim sem hafa misst unga ástvini. Fólk sem var í blóma lífsins en þurfti að kveðja svo fljótt. Guð veri með ykkur. Ásta María

Mér þætti vænt um ef þú kveiktir á kerti fyrir Rúnar Vincent Jensson sem lést af slysförum í Colombiu á gamlársdag. Hans er sárt saknað. Bestu kveðjur,Steina

Viltu kveikja á kerti fyrir vinkonu mína, Ólöfu Guðjónsdóttur, sem lést 12. des. 2005.  Megi ljósið eilífa lýsa þér elsku Ólöf og ylji  börnum þínum og fjölskylduna alla.  Sofðu rótt.Sæunn

Mig langar að kveikja á kerti fyrir mág minn sem lést á árinu sem er að líða, hann Ólaf Emil Eggertsson en hann lést þann þriðja júní 2005. Guð veri með þér. Kveðja Rakel Rut Ingvadóttir.

Við viljum kveikja á kerti fyrir pabba okkar, Guðbjart Inga Bjarnason, sem lést á jóladag eftir erfiða baráttu við krabbamein. Þú varst tekinn alltof fljótt frá okkur, en við vonum að þér líði vel þar sem þú ert og vonandi ertu hjá Gesti og afa. Ástar- og saknaðarkveðjur Tinna og Sunna.

Viltu kveikja á kerti fyrir hana Helgu, mína bestu vinkonu,sem ég sakna svo mikið, hún dó úr þessum miklan erfiða sjúkdómi, krabbameini.  Hvenær finna þeir upp allsherjar lækningu móti þessum sjúkdómi.  'Eg bíð og bíð.  Það eru svo margir sem eiga allt sitt undir því, að það finnist lækning á þessu.    

þetta kerti er til minningar um Bjarnfríði Guðjónsdóttir sem lést 24 des´05 sakna þín óendanlega mikið.

Þetta kerti logar fyrir hann Mumma,kæri vinur þín er sárt saknað. Guð veri með þér elsku vinur Jólakveða frá okkur í holtinu.

Mig langar til að kveikja á tveimur kertum.  Fyrra kertið er fyrir tengdamóður mína Ólöfu Óskarsdóttur (59 ára) sem lést 2. jan. 2003 úr krabbameini.  Seinna kertið er fyrir tengdaföður minn Óla Björgvinsson (63 ára), sem lést núna 22. des. 2005   Ykkar er sárt saknað og elsku Óli, takk fyrir jólagjafirnar til okkar allra, aldrei á ævinni hefur maður setið með eins dýrmætar jólagjafir í fanginu, vitandi það að þetta var með þínum síðustu verkum að ganga frá þeim.
Þótt söknuður okkar allra sé mikill þá erum við samt glöð fyrir þína hönd að vera komin til Ólafar þinnar aftur.Ykkar tengdadóttir, Þórey Dögg.

Póstur