Minningarsíða - Kertin 2007

Kerti fyrri ára   2004  -  2005  -  2006

Kveiktu á kerti fyrir látinn ættingja eða vin sem þú vilt minnast.

Klikkaðu hér KVEIKJA Á KERTI  til að tendra ljós. Frí þjónusta fyrir alla.

Í sorg og í gleði ég senda mun ljós..................

Ég vil kveikja á kerti fyrir Agnesi frænku mína sem kvaddi þennan heim eftir erfiða baráttu við Krabbamein í lok desember 1999. Ég sakna þín í dag sem og aðra daga elsku frænka.

Langar einnig að kveikja á Kerti fyrir fjölskyldunni í Hafnarfirði sem missti eiginmann sinn, föður og afa í hræðilegu slysi úti í Marakkó þann 25 desember sl. Megi guð veita þeim styrk í sorginni. Kv. Frænka og vinkona

Langar að kveikja á kerti til minningar gamla skipstjórans míns sem kenndi mér margt og mikið en sá merki maður hét Helgi Jóhannsson og lést af slysförum um borð í skipi sínu í Marokkó þann 24 Des 2007.Bið ég æðri máttarvöld að styrkja eginkonu börn og fjölskyldu í sorgini og veita birtu og frið inn í líf þeirra
 
Guðmundur Falk

Mig langar að kveikja á kerti til minningar um son minn Þórarinn Samúel Falk Guðmundsson sem lést af slysförum við Jónasarlund í Öxnadal þann
17 Júní árið 2005 Þín er sárt saknað elsku kúturinn minn og ég trúi að þú vakir yfir okkur og þú sért á góðum og friðsælum stað.
 
 
Í hjartanu mínu lifir þú enn
og ert þar ávallt þegar ég vakna
 
Þinn faðir

Ég vik kveikja á kerti í minningu elsku systur minnar, Kristjönu, sem lést 2 des. 2005. Hennar er sárlega saknað. Góði Guð vetru með oh hjá öllum sem þótti vænt um og elskuðu Kristjönu.

Kristín Halla

Bið þig í nafni drottins og heilags Jesú að kveikja á kertum annars vegar fyrir frænda minn hann Óskar Þór Sigurðsson sem dó nú á dögunum fyrir jól sem og afa mínum Þresti Hjaltasyni sem lést sumarið 2005. Þá mættust frændur 2 á himnum og féllust í faðma, þeir deyja ungir er Guðirnir elska, hvíl í friði mínir menn. Bið ég fyrir fólkinu okkar, vinum og vandamönnum og að ljós, friður og kærleikur umleiki okkur öllum stundum allt til enda veraldar. Þakka ég afa mínum fyrir alla hlýjuna, hvatninguna, styrkinn og vináttuna. Mikið ofboðslega sakna ég þín elsku afi, hafðu það gott á himnum umvafinn englum og vættum sem elska þig og vernda. Heyrumst í kyrðinni og föðmumst í draumi, gleðilega hátið.
Þinn sonarsonur Víðir Snær Víðisson

Ég kveiki á kerti í minningu foreldra minna  - IS

Eg vil fá að kveikja á kertum til minninga um ömmu mina hana Unni sem lést 1993 og afa Einar Oddbergsson sem lést 1997 og syni þeirra og guðföðir minum sem lést nuna 5 nóv 07 i vinnu slysi i Sviþjóð. Hann Rafn Einarsson sem fór skyndilega frá okkur eftir að hafa náð góðum tökum á sinu erfiða lifi. Blessuð sé minning ykkar og hvilið i friði ykkar er sárt saknað. 

Kveðja ykkar barnabarn og litla mörgæsa frænka hehe þú skilur Erna Sif.

Mig langar að tendra ljós til minningar um hana Elínu, mömmu bestu vinkonu minnar hennar Maríu. Hún lést þann 1.apríl 2007. Guð gefi fjölskyldu hennar styrk á fyrstu jólunum án hennar.
Einnig langar mig að tendra ljós til minningar um Sigga stjúppabba minn, ömmu Tótu, ömmu Lenu, ömmu Lilju, afa Gunnars, afa Sigurð, ömmu Sigrúnu, Guðleifu og alla hina ástvini mína sem hafa yfirgefið þessa jörð allt of snemma.
Ykkar er sárt saknað.
 

Það koma jól.
Þó einsemd á þér nái tökum
Þó þrautir lífsins gleði taki af þér
Það koma jól
Þó minningarnar að þér sæki
Þó allt sé breytt
Þá koma jól

 Megi Guð og englarnir gæta ykkar. Þóranna Hrönn.

Vil kveikja á kerti fyrir elsku pabba minn. Ég sakna þín alltaf mikið .Hugsa til þín á hverjum degi. Veit að þú vakir yfir okkur.  Þín dóttir Hrönn.

Við viljum kveikja á tveimur kertum, fyrir pabba og Helgu Líf.

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir pabba/tengdapabba, því hann átti afmæli í gær þann 20. desember. Hann dó 1992. Svo viljum við kveikja á kerti fyrir dóttur okkar sem fæddist andvana 27. oktober 1997, eftir 28 vikna meðgöngu.

Þau eiga alltaf stórann hluta af hjarta okkar.

 

Anna Björg og Ragnar Þór.

Mér langar að kveikja á kerti fyrir afa minn sem lést í janúar síðastliðnum. Afi ég sakna þín rosalega mikið og hugsa um þig á hverjum degi. Svava Rún

Ég kveikji á kerti til minningar um Þórlaugu Kristinsdóttur
Guð geymi þig, kærleikskveðja EE og BJ.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir hana ömmu mína, Ingunni Einarsdóttur frá Aðalbóli. Þetta eru fyrstu jólin án hennar. Einnig vil ég kveikja á kerti fyrir Marinó Björnsson vin minn. Megi guð geyma þau í örmum sínum. Ykkar er sárt saknað hérna. Ykkar Hafrún.

16.12. 2007. 

Mig langar að kveikja á kerti  fyrir hann. Gumma Eið Það  er eitt ár í dag síðan hann dó Guð  vaki yfir þér elsku  yndislegi Gummi Eiður minn. Vallý og fjölskylda

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Jóhann og Guðmund sem fóru í ágúst í fyrra og eins vinkonu minni Guðný.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir minn yndislega tengdapabba sem ég sakna mikið. Með þökk fyrir allt og allt RHI.

13.12.2007. Viltu kveikja fyrir mig á kerti fyrir hann Jón frænda minn sem þurfti að kveðja þennan heim í fyrrinótt. Hans verður sárt saknað. EÖE

Mig langar að kveikja á kerti fyrir pabba minn Sigurður Sigfússon sem lést 5 des 2007.Guð geimi þig alla tíð sakna þín mikið .Fríða

12.12.2007.  Þetta kerti er fyrir vin minn og alla þá sem þjást vegna fíknarinnar.  Elsku Jói, þú þekkir leiðina til ljóssins, berstu áfram og þú sigrar.  Guð veri með þér og leiði.  Þín H.

 

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir föður og afa okkar Runólf Jónsson sem lést 4 nóv 2007. Guð geymi þig pabbi minn Söknum þín
Sísí, Halldór ,Ingólfur og Stefán

Kveiki hér með á kerti til minningar um elsku mömmu mína sem lést í des. 2006.
Trúi því varla að heilt ár sé liðið....sakna þína alla daga. Þín Irma.

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir lítinn dreng Tómas Inga sem lést í nóvember 2007 eftir baráttu við krabbamein hann varð aðeins 10 ára, ó hvað manni finnst lífið stundum óréttlátt.  Ég þekkti hann ekki en bið fyrir fjölskyldu hans á þessum erfiða tíma.
Kveðja fá vinkonu Auðbjargar ömmu hans.

Ég kveiki  á sex kertum fyrir Móður mina, föður minn, systkini og systurson

Það er svo sárt að hafa  misst ykkur öll.Vallý.

Kerti fyrir hana Diddu mína...Dísa

Mig langar að kvekja á kerti fyrir ástvini mina sem ég sakna. Kveðja Svana.

Kveiki á kerti fyrir Jón Pálma  og systkinin frá Skorholti  guð blessi þau öll, Sonja &Jón og fjölsyldur
 

Til minningar um föður minn og móður bið ég um kertaljós Kveðja Hlín.

Kveiki á kerti fyrir litla drengin sem lést í  bílslysi Keflavík.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir drenginn sem lést í slysi hér í Keflavík Kristinn Vignir senda mínar bestu samúðarkveðjur til fjölskyldu hans og ættingja kveðja Dóra og fjölskylda.

Viltu kveikja á kerti fyrir Dóru Guðlaugsdóttur sem lést  á sjúkrahúsi Vestmannaeyja.  Minningin um góða konu með mikinn karakter lifir.  Sonja.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Snorra Þorláksson föður vinkonu minnar hann lést 29 nóvember og svo vil ég senda samúðarkveðjur til fjölskyldunnar líka, megi góður guð styrkja ykkur í sorginni.
Kær kveðja Jóna og Dave.

Þetta ljós lifir fyrir þig elsku Halli Palli minn hugsa um og sakna þín alltaf   kveðja Lollý

Ég vil kveikja á kerti um minningu um hana Margréti sem lést nýlega og er búinn að vera að berjast við krabbamein. Guð varðveiti og styrkir Palla og börn. Kær kveðja KSS.

Grímsey 27.11.2007
Ég kveiki á kerti til minningar um yndislega tengdamóður mína Kristínu Jóhannesdóttur  sem kvaddi 2. nóvember 2007. Hafi hún hjartans þökk fyrir allt og allt - Guð geymi hana á nýjum leiðum.
 Helga Mattína.

Lítið ljós fyrir alla þá sem eiga um sárt að binda .  NN

Mig langar að kveikja á kerti fyrir ömmu mína sem dó 10.október 2006, Steinþór frænda sem dó 21.júní 2003, Unna sem dó í janúar 2007 og Magga sem dó fyrir mörgum árum.

Einnig langar mig að kveikja á kerti fyrir litlu Ingibjörgu Ósk og systkini hennar sem fékk ekki að fæðast í þennan heim. Ég vil líka kveikja á kertum fyrir

litlu sálunum þremur sem komust ekki til okkar undanfarin ár, og um leið vona að að þeirra tími sé kominn núna til að fæðast. 

Anna og fjölskylda.

 


Mig langar að kveikja á kerti fyrir mömmu mína, Stefaníu Lórý, sem lést 7. nóvember sl. Ég sakna þín mamma, takk fyrir allt.  Þín dóttir Pálína Hildur. Ljóðið hér fyrir neðan var samið sérstaklega fyrir mig til minningar um mömmu

 

Móðurminning

 

 

Það er svo margt sem minningarnar geyma

og margar stundir þegar að er gáð

Er ég og mamma ræddum ýmsa heima

þá alltaf gat ég fengið hennar ráð.

 

Hún margt mér kenndi, mikið fram að færa

um það hvernig lífsins gangur er

Aldrei of seint að eflast lifa og læra

og láta ávallt gott eitt leiða af sér.

 

Hún var mér stoð og stytta er á reyndi

í ófá skipti aðstoð veitti mér

Hún sínum eigin erfiðleikum leyndi

og aldrei nokkurn tíma hlífði sér.

 

Nú ertu farinn frá mér elsku mamma

ég finn að harmur nístir hjarta mitt

Og börnin bíða þess að besta amma

birtist á ný með bjarta brosið sitt.

 

Þú lokið hefur lífsins amstri og puði

ljúfsárar minningarnar fram ég dreg

Ég veit þú situr nú í sátt hjá Guði

og sæl þar lítur yfir farinn veg

 

                                    (Valur Ármann Gunnarsson)
 

Ég vill kvekja á kertum. Fyrir öllum þeim sem farnir eru , Ástarkveðja   Vinur i raun.

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir kennarann minn sem lést 6 nóv 2007. Mörtu Guðmundsdóttir. Ég sakna þín.Guð geymi þig.  Kolfinna Auður og mamma.

Mig langar að kveikja á 3 kertum til minningar um bróðir minn Hreiðar Snær Línason, mágkonu Ingibjörgu Eddu Guðmundsdóttir og litla frænda Leon Örn Hreiðarsson . Þau létust í hræðilegum eldsvoða  þann 4.jan 2002. Ykkar er sárt saknað en minningin um ykkur mun alltaf lifa             
   kær kveðja  Svanfríð
 

Ég vil kveikja á kerti fyrir Langafa minn sem dó  í október úr veikindum.Guð blessi fjölskylduna og alla sem þekktu hann.
Kær Kveðja Sandra Dröfn Jóhannsdóttir.  
 

Þetta kerti logar fyrir....Örn sem lést af völdum krabbameins í maí 2007 Jóhannes sem lést í bílslysi í ágúst 2007 Hilmar sem lést einnig í ágúst 2007 Harald sem lést í nóvember 2007 Og fyrir föður minn Sturla og vin hans Einar sem létust árið í mars 1985. Kveðja Sædís Hrönn.

Þetta kerti logar fyrir Ragnheiði Sæmundsdóttur.  Bryndís

Ég vil kveikja á kerti fyrir Rafn Einarsson sem lést í vinnuslysi þann 5 Nóvember 2007 í Leksand í Svíþjóð, ég mun ávallt sakna þín, guð veri með þér og öllum vinum og ættingjum þínum. Þín vinkona Guðrún.

Ég kveiki á kertum til minningar um elskulega módur mína sem lést á gamlárskvöld 2006 . Uppáhaldstíminn hennar er að koma.. ég sakna þín sárt og hugsa til þín alla daga...ég bíð eftir að fá að hitta þig...þú ert allra besta módir og hetjan mín. Mamma þú manst lofordid........

Mamma ég elska þig. kvedja A.S.

Við viljum biðja þig um að kveikja á kerti til minningar um gamla skólasystir okkar Herdísi Hauksdóttur sem lést 6. nóvember.  Gréta og Anna Ben
 

Mig langar að kveikja á kerti hér til minningar um Mörtu Guðmunsdóttur. kv Erla Jóna
 

06.11.2007 - Ég kveiki á þessum tveimur kertum til minningar um tvær hvunndagshetjur sem eru nýlátnar hér á Dalvík, þær Hildigunni Kristinsdóttur og Þórlaugu Kristinsdóttur. Með þökk og kærleikskveðju JJ.

Mig langar að kveikja kerti fyrir Hildigunnur Kristinsdóttir. lést 29.október 2007,Frá Dalvík , ég sakna þín og á margar minníngar um þig,  Vona að mér takist það sem ég lofaði þér. Laufey Theodóra.

Mig langar að kveikja á kerti til að minnast góðrar vinkonu hennar Mörtu Guðmundsdóttur. - Sigfús

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir Mörtu Guðmundsdóttur sem lést í morgun 6 nóvember 2007.
Guð geymi þig alla tíð við söknum þín Palli og Margrét

Okkur langar að keikja á kerti fyrir Mörtu Guðmunsdóttur kennara sem lést í dag 6. nóvember eftir snörp en erfið veikindi. Marta þú ert hetjan okkar. 
Ólafur Þór og mamma.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elsku ömmu mína og lang ömmu guðbjörgu maneu við söknum þí mikið sorginn er sár en þér líður vel þar sem þú ert núna þú ert kominn til lilla sála og gretar elfars elsku færnda okkar sem var tekin alltof fljótt frá okkur hann var aðeins 3 mánað gamall en ég veit að þú passar hann núna ég hveð þig elsku amma mín og lang amma meigi guð varveita þína sál un við hittumst á ný ég veit að þú munt taka á móti mér með oppnum örmum elsku magga amma mín ég kveð þig nú en ég mun aldrei gleima þér aldrei ég elska þig af öllu hjarta elsku guðbjörg amma mín guð geimi þig                  

, Auga mitt og augað þitt
og þá fögru steina,
mitt er þitt og þitt er mitt,
þú veist hvað ég meina.

Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér

                                                                                                   Elsku guðbjörg amma mín .


  Leiðir skilja vini alla.
Tárin strítt þá streima'og falla.
En þitt ljós mun ávalt skína,
minning þín mun aldrei dvýna.    
 

Mig langar að kveikja á kerti fyrir hana ömmu mína hún lést 10 ágús 2007 ég elska þig elsku amma mín þú varst besta amma sem ég átti nafna mín og besti vinur ég veit að þér líður vel þar sem þú ert núna ég bið góðan guð að varveita þína sál elsku magga amma mín ég mun ávallt elska þig kv guðbjörg guðný.

Mig langar að kveikja á kerti til minningar um elskulega móður mína sem lést 31.10.05.   
Sakna hennar alla daga,  Kolbrún.

Værirðu til í að kveikja á fimm kertum fyrir mig
 
það fyrsta logar fyrir mömmu bestu vinkonu minnar, sem lést á þriðjudaginn var, bróður bestu vinkonu minnar, sem lést 5. des 2004 og svo síðust en ekki síst henni mömmu sem lést á mæðradaginn 2006 eftir langa og stranga baráttu við þunglyndi.
 
Annar loginn á að loga fyrir þá sem ég þekkti, eða vildi hafa þekkt sem hafa látist í gegnum tíðina
þar má nefna hann afa sem lést 15 júní 1999, hinn afa minn sem ég fékk aldrei að kynnast en hann lést árið 1986, svo er það hann Kalli bróðir mömmu, sem lést árið 1988 og ekki fékk ég að hitta hann, svo er það litli frændi minn sem lést við fæðingu árið 1996, og einnig bróðir Möggu sem lést í hörmulega flugslysi árið 1997. Og á þessi að loga fyrir alla hina sem ég taldi ekki upp, alla sem hafa verið nefndir á þessum vef,,alla sem áttu engan að og alla sem eiga erfitt.
 
Sá þriðji á að loga fyrir hana Nínu bestu vinkonu, hún hefur nú á sínum sextán árum þurft að þola meira en flestir alla sína ævi, nú á þriðjudaginn missti hún móður sína og hefur nú þegar misst bróður sinn. Hún á skilið allt það besta og því logar kerti fyrir hana, til þess að minna hana á að hún á marga að sem elska hana og vilja hjalpa
 
Sá fjórði á að loga fyrir aðstandendur.
 
Sá fimmti vil ég að logi fyrir systur mínar. Þær eiga allt það besta skilið. Eftir að mamma dó hefur lífið verið erfitt og atburðir síðustu daga hafa vakið upp gamlar minningar. Ég vil að þær viti að við stöndum saman í einu og öllu. Þær eru aðeins 17 og 19 og ég er sú litla, aðeins 15 en við vitum samt hvernig er að missa og sakna og finnum til með öllum þeim sem hafa misst einhvern eða lent í áfalli yfir ævina og við hugsum til þeirra á hverjum degi. - Oddrún.

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir látinn Snorra Lárus Ölversson bróður minn, sem fór í júní 2004 langt um aldur fram.Líka fyrir vinkonur mínar sem einnig dóu úr krabbameini korn ungar þær Guðrúnu Helgu Arnarsdóttur, Grétu og Lóuna mína litlu sem  dó í sumar Guðbjört Lóa Sæmundsdótti og fyrir Hilmar J Hauksson þann kæra vin.

 Svo líka kveikja á kerti fyrir alla sem eru að berjast fyrir lífinu. Með kærleikskveðju

Vilborg Ölversdóttir

Í minningu Rósu Sveinsdóttur frá Grundarfirði.

 

Þeir segja mig látinn,

en ég lifi samt,

í ljósinu fæ ég að dafna.

Því ljósið var úthlutað öllum jafnt

Og engum ber þar að hafna.

Frá hjarta mínu berst falleg rós,

Því lífið ég þurfti að kveðja.

Í sorg og í gleði ég sendi nú ljós,

Sem ykkur er ætlað að gleðja - (Guðmundir Ingi Jónatansson).

 

 

Elsku mamma við söknum þín svo mikið, við brosum í gegnum tárin því núna kemst þú um allt og getur verið með okkur í anda. Minning þín er ljós í lífi okkar. Þín dóttir Auður Hanna.

Mig langar til að kveikja á kerti til minningar um föður minn Helga Hafliðason og móður mína Jóhönnu Júliusdóttir ég elska ykkur og hugsa oft til ykkar guð geimi ykkur  - kveðja Dagbjört.

Mig langar að fá að kveikja á kerti fyrir Gunnar afa
Afi þú varst alltaf til staðar fyrir mig þegar lífið var erfitt og þú verður alltaf í hjarta mínu´ég sakna þín svo mikið og ég vona að þér líði vel þar sem þú ert - Gunnsteinn

Ég vil kveikja á kerti fyrir hana Siggu Sig. , Jónas og börnin þeirra fjögur. Hugur okkar og bænir eru hjá ykkur núna elskurnar á þessum erfiðu tímum ....höldum í vonina biðjum um að hetjan okkar nái að sigrast á þessum hræðilega sjúkdómi!!!!

Hlýjar kveðjur - Fjölskyldan á Laugavöllunum á Egilsstöðum.

Ég vil kveikja á kerti fyrir alla gömlu vinina og grannana sem létust í snjóflóðinu hræðilega heima á Flateyri  þann 26. október 1995. minning ykkar lifir í sálum okkar og í  fallega firðinum okkar að eilífu. Við munum  aldrei gleyma ykkur.

Með hlýju og söknuði Sigga Hinriks. og fjölskylda.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir dóttur mín sem fæddist andvana fyrir rúmlega 8 árum síðan og ég hef verið að hugsa mikið til elsku litlu fallegu dóttur mínnar undanfarið sem fékk það fallega nafn Sylvía Lind....Með kærri þökk Mamma.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir strákinn minn hann Þórð sem hefði orðið 21 árs 27 oktober væri hann hér hjá okkur. Sakna þín óskaplega elsku strákurinn minn. Pabbi

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir elsku mömmu mína, Báru Rut Sigurðardóttir, sem lést fyrir ári síðan. Elsku Mamma mín, ég sakna þín svo sárt, ég hugsa um þig á hverjum degi. Ég á svo margar góðar minningar um þig sem ég geymi í hjarta mínu.

Ég elska þig Mamma, Þín dóttir Gína.

Vertu nú yfir og allt í kring,
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring,
sænginni yfir minni.

Ég vil kveikja á kerti fyrir Kristjönu mömmu vinkonu minnar sem lést í dag 7. okt eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Vil ég biðja drottin Guð um að styrkja þessa fjölakyldu á þessum síðustu og verstu tímum. Hvíl í friði elsku Kristjana mín. Þú ert hetja.

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir frænda okkar, honum Ásgeiri Jóni Einarsyni sem lést í bílslysi þann 2 desember 2006. Hann var aðeins 29 ára gamall, þegar hann fór frá okkur og skildi eftir mikið tómrými þegar hann fór.
 
Okkur langar líka að Kveikja á kerti fyrir Mömmu hans og Bróðir sem hafa átt erfitt eftir að hann fór.
 
Við söknum hans Ásgeir svo mikið. Þín Frændsystkyni Davíð Freyr og Stína Fía.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir bróðir minn Elías Kristján Helgason sem lést 18 júní 2007 elsku Elli minning þin er ljós í lifi okkar.

Kveðja Helga systir og fjölskylda

27.09.2007
 
Mig langar að biðja þig að kveikja á kerti til minningar um Rósu Sveinsdóttur, yndislegrar konu frá Grundarfirði en hún dó í nótt.

Við vilijum kveikja á kerti til minnigar um góðann mann sem lést eftir langa og stranga baráttu við illvígan sjúkdóm þann 7. ágúst 2007. Biggi, minning þín mun lifa í hjörtum okkar.

Kveðja Rósa og Ingi, Sigga og Hallur.

Eg kveikji á kerti fyrir Mömmu og Pabba....Krissa ....Halldór Syddy....Svenna....Guðny....Hölla....þórleif.....Ástu ...Steina...Öldu...Arngrín ..Þórönnu og öðrum vinum mínum Guð geymi ykkur öll .....Eg sakna ykkar allra   kveðja Soffia Ragnarsdóttir

Ég kveiki á kerti fyrir góðan vin minn, Konráð Þórisson sem lést 11. september 2007. Koni er farinn heim eins og við skátarnir segjum, hans verður saknað af mörgum góðum vinum og félögum úr skátahreyfingunni og björgunarsveitarstarfi. Alltaf tilbúinn til að rétta öðrum hjálparhönd, hvenær sem var, hvar sem var.
Hvíldu í friði elsku Konni okkar.
Vigdís, Friðrik, Agnes og Laufey.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Kristínu Örnu Arnardóttur frænku mína sem að lést langt fyrir aldur fram eða 28 ára gömul núna í ágúst síðastliðnum.Og eins fyrir mömmu hennar,Kristínu Gunnarsdóttur og systkyni hennar þau Nínu og Benna.Ég bið Guð að styrkja ykkur og vaka yfir ykkur á þessum erfiðu tímum. Kveðja, Guðrún Lilja.

ég vil fá að kveikja á kerti fyrir Pétur Guðlaugsson afa minn sem lést 19.05.06 eftir stutta baráttu við krabbamein.. elsku afi minn ég sakna þín sárt en ég veit að þér líður vel þar sem þú ert og fylgist vel með okkur og passar okkur... ég vil einnig fá að kveikja á kerti fyrir hann garðar þormar (gæja) hann var einn hláturmesti maður sem ég þekkti og góðvinur Péturs afa.. nú getið þið hlegið saman upp og haft gaman. einnig vil ég kveikja á kerti fyrir ömmu vinkonu minnar sem lést núna 24.08.07 eftir baráttu við mikil veikindi en henn líður loksins vel.. ég votta öllum þeim sem eiga um sárt að binda mína samúð og minn styrk..

Fyrir elskulegan son minn, Hilmar Má. Mamma elskar þig ætíð og saknar þín mikið. Nú ertu frjáls sem fuglinn hjá englunum. Guð geymi þig. Mamma

Elsku Hilmar, sendi þér ljós sem mun lýsa þér í nýjum heimi. Við munum gæta mömmu þinnar og biðja fyrir ykkur öllum. Ásdis og fjölskylda Selfossi.

Ég vil kveikja á kerti fyrir son minn, Hilmar Má Gíslason, sem lést 19 ágúst. Hann var einungis 21 árs. Með kveðju - Ragnheiður Hilmarsdóttir.

Mig langar að kvekja 6 á kertum fyrir afa Vilhjálm sem lést 4.maí 1966 (sem ég hitti aldrei en hugsa oft um), tengdaföður minn Magnús sem var lést aðeins 58 ára gamall þann 18. maí 1989, Afa Gunnar sem lést 26. janúar 1990, Ömmu Málfríði (sem ég kallaði alltaf ömmu Berglindi) sem lést 22.apríl 1996, Ömmu Bergþóru sem lést 13.desember 1997, Hilmar Þór sem lést 9.nóvember 1999 Blessuð sé minning ykkar.

Berglind Guðmundsdóttir

Viltu kveikja á kerti fyrir unga konu Þórdísi Tinnu dóttur hennar og foreldra . Þórdís fékk slæmar fréttir í dag af veikindum sínum. Þau eiga öll alveg óskaplega erfitt núna mikil sorg hjá þeim. Kveðja PSj

Ég vill kveikja á kerti fyrir yndislega konu sem dó þann 6.apríl 2007 eftir langa baráttu við krabbamein.
Guð geymi þig tengdamamma,ég veit að þú ert með okkur ávalt og þú fylgist með sonum þínum 5 frá himnum. Kv. Júlía Katrín.

Mig langar að kveykja á kerti fyrir elsku cosmo minn hann var besti voffi sem hægt var að hugsa sér guð geimi þig elsku strákurinn okkar við hvejum þig með drega og miklum söknuði guð geimi þig hv aníta ósk 12 ára eigani þinn

Mig langar að kveikja á kerti til minningar um hundinn minn Cosmo sem lést af slysförum að morgni 21.júli 2007. Megi góður guð geyma hann og varðveita. Hvíl í friði vinur minn. Kveðja, Eiríkur

Mig langar að kveikja á tveimur kertum fyrir Guðmund Inga Ólafsson sem var tekinn alltof fljótt frá okkur eða þann 8 nóv 2006, aðeins 17 ára gamall, og fjölskyldu hans, sem er búin að standa sig rosalega vel í þessum mikla missi.
Sjálf þekkti ég Gumma ekki vel en ég vissi að hann gæti lýst upp heilu hallirnar bara með því einu að brosa, við söknum þín mjög mikið elsku Guðmundur Ingi.
Hvíldu í friði elsku drengur.A.R.A.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elsku bróðir minn Elías Kristján Helgason sem lést 18. júní 2007.  Ég elska þig og sakna þín Elli minn og þú munt lifa áfram í hjarta mínu.  Ég vil líka kveikja á kerti fyrir börnin hans og alla fjolskylduna okkar.  Maja

Hvíldu í friði Bergur minn....

 

Mig langar til að kveikja a kerti fyrir minn ástkæra föður Sigurbjörn Herbertsson sem lést 20 nóvember árið 1995. Vildi bara segja hvað eg sakna þin endalaust,eg veit þu vakir yfir mer.
En þetta er buið að vera erfitt an þin en mer gengur agætlega - elska þig meira en allt.
 Þin Bylgja.

Ég vil kveikja á kertum fyrir Þórdísi Tinnu og Kolbrúnu Ragnheiði í Ótrúlega hetjulegi baráttu við krabba rabba -

Gömul skólasystir Brynja

Mig langar að kveikja á kerti fyrir pabba minn Alla Hansen sem dó svo langt um aldur fram, sakna þín á hverjum degi - Þín dóttir Áslaug

Okkur Langar að Kveikja á Kertum fyrir alla sem við Elskum svo Mikið og fyrir Alla sem okkur Þykir svo Óendanlega vænt um. með KÆRLEIKSKVEÐJU TIL YKKAR ALLRA. ykkar allra er sárt saknað.ÁSTARKVEÐJUR . ÁSTRÓS WERNER GUÐMUNDSDÓTTIR. OG FJÖLSKYLDA.

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir ástkærann faðir, tengdafaðir og afa Aðalbjörn Stefánsson sem lést 31.maí 2007. Hans er og verður ávalt sárt saknað. Blessuð sé minning þín, megi guð og góðir englar passa þig og vera með þér.
 
Kveðja  Einar, Signý, Alexander Alvin, Óttar Már og Nína Ingibjörg.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir móður mína Guðmundu Sigríði Óskarsdóttir. GÓGÓ. Afmælisdagurinn hennar er í dag þann 11. júní 2007. Hún hefði orðið 69. ára Hvíl í friði. Þín dóttir Inga.

Mig langar að kveikja á kerti í minningu Guðmunds Inga Ólafssonar sem kvaddi okkur 8 nóvember sl. Þetta var erfiður dagur í lífi allra Skagstrendinga.
Við söknum þín sárt elsku Gummi okkar. Hvíldu í friði kallinn minn.
Elsku Hrönn og fjölskylda, ég sendi ykkur allann minn hug og guð megi veita ykkur styrk um ókomin ár. Þangað við hittumst næst Á.R.

Fyrir pabba okkar, Daníel Þór Hilmarsson.

Kveðja Íris og Hilmar

Mig langar til að kveikja á kerti í minningu föður míns, Arnórs Friðbjörnssonar sem dó 14. febrúar 2007 eftir erfið veikindi. Ég er hins vegar svo óendanlega þakklát fyrir það að þú hresstist nægilega til að við náðum að spjalla aðeins kvöldinu áður en þú kvaddir. Þín er sárt saknað og ég elska þig elsku pabbi. Hvíl í friði, þín Lilla

Við kveikjum á kerti fyrir pabba, afa Kolla, langafa og tengdó sem hefði orðið 78 ára í dag. Minningin um hann lifir með okkur um alla eilífð

Eyjólfur, Brynja, Halla Hjördís og CO, Eyfi, Andri, Tanya og Davíð Ernir

30.05. 2007 Kveikja á kerti fyrir Ástul Lovísu sem lést í dag. Guð vaki yfir henni og ástvinum henar.

Ég vil kveikja á kertum fyrir elsku frænda minn hann Hauk Frey sem lést í 9 júní 2006 aðeins 24 ára að aldri. þín er sárt saknað elsku frændi. Einnig vil ég kveikja á kerti fyrir hann Mumma besta vin unnusta míns sem lést 5 mars 2004 hans er sárt saknað. við hugsum til ykkar alla daga. Við viljum líka kveikja á kerti fyrir hana Ástu Lovísu sem berst eins og hetja við krabbamein það kerti er fyrir hana og hennar fjölskyldu

Mig langar að kveikja á kerti fyrir frænda minn sem lést í sjóslysi í mars 2007
mig langar líka að byðja góðan guð að styrkja og hugga hans fjölskyldu einnig
vil ég kveikja á kerti fyrir mömmu mína sem lést 1973 pabba minn sem lést 1971
litla son minn sem lést 17 nóv 1993 .
Ó þá náð að eiga jésú
einkavin í hverri þraut
ó þá heill að halla meiga
höfði sínu í drottins skaut.
Hvíl í friði ykkar er sárt saknað.
Jóna

Ég vil kveikja á kertum fyrir;

Arnar Karl Bragason
Stefán Lúðvíksson*
Krissa með brosið í hjartanu sínu
Hjálmar Vagn Hafsteinsson
Þórólf (Doll ;) )
Helga Má
Og alla hina sem farnir eru... Love you guys.. Ykkar Dísa

Ég kveiki á kertum mínum  við krossins helga tré. Til minningar um móður ömmur afa og eina dóttur sem fæddist aldrei....Guðni.

Langar til að minnast Gunnu frænku minnar sem hefði átt afmæli í dag 13. maí 2007..Ég sakna þín elsku frænka mín.

Núna á morgunn 13 maí eru 2 mánuðir síðan elskulegur sonur minn Eiríkur Þórðarson og faðir, fórst í mynni Ísafjarðar.Mikið söknum við þín elsku Pabbi minn sonur minn,við viljum kveikja á 2 kertum fyrir þig og biðjum guð að varðveita þig elskan.
Þin Mamma og dóttir þín Avona María 

Ég  vil kveikja á kerti fyrir elsku mömmu mina sem dó 29 mars daginn fyrir afmælið mitt í hári elli blessuð sé minning hennar. Kv dóttir hennar Dísa.

Við kveikjum á kerti fyrir vin okkar Sigurð Björnsson sem á afmæli í dag 30. apríl.
Hvíldu í friði, kæri vinur og megi englarnir vaka yfir þér!!
Þín er sárt saknað!!  -  Árni Sal. og Arndís Hrund.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Jóni Geiri Guðnasyni sem að lést í gærkvöldi 28. apríl 2007.. Einnig fyrir börnum hans og öðrum aðstandendum. Blessuð sé minning hans.

Mig langar til að kveikja á kerti til minningar um mína kæru og góðu vinkonu, Jóhönnu sem hefði orðið 45 ára í dag 25 apríl. Hvíldu í friði kæra vina, þín Gústa

Ég vil kveikja á kerti fyrir æskuvinkonu mína Höllu Margréti Ásgeirsdóttur sem lést eftir bílslys 23. október 2006 aðeins 15 ára og fjölskyldu hennar Ásgeir, Margréti og elsku litla Unnar. Halla ég mun aldrei gleyma þér ég elska þig, engin mun gleyma hversu góð þú varst við allt og alla. Hér er lítið ljóð sem ég samdi til elsku bestu vinkonu minnar sem gæddi líf mitt svo yndislega.

 
Elsku Halla mín
nú ertu farin
litla yndislega stúlka
besta vinkona mín
að eilífu
horfin til guðs
og situr við hlið hans.
hluti af hjarta mínu
er farin
sorgin er mér ofviða
en ég veit
þú munt alltaf vaka yfir mér
og vera hjá mér
fallega góða Halla
ég mun geyma þig hjá mér
í mínum hugsunum, draumum
og mínu brostna hjarta
ég elska þig
þitt bros
þína lífsgleði
ég mun aldrei gleyma þér
bíddu eftir mér.


 
Kveðja Anna Guðrún Einarsdóttir

Þú mátt tendra á kerti fyrir Ungum Manni sem hefði verið 25 í dag 23. ap´ril 2007. Hann hét Ari Freyr Jónsson en hann lést 16.09.2004 og einnig mátu kveikja á kerti fyrir fjölskyldu hans.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir hann elsku pabba minn, Karl Rúnar Guðbjartsson, en hann létst þann 19 apríl. Elsku pabbi minn ég sakna þín og ég elska þig mjög mikið. Þín dúlla
Unnur Steina Knarran Karlsdóttir.

Við kveikjum á kerti fyrir vin okkar Sigurð Björnsson sem á afmæli í dag. 30. apríl

Hvíldu í friði, kæri vinur og megi englarnir vaka yfir þér!!

Þín er sárt saknað!! - Árni Sal. og Arndís Hrund

mig langar að kveikja á kerti fyrir einum af mínum bestu vinum Sigurgeiri Núma Birgissyni. F. 26.01.84  D.11.03.07
Vonandi ertu kominn á betri stað núna Geiri minn:**
Þín vinkona Þóra

Ég kveiki á kerti fyrir Hjört son minn sem fórst með hellisey 11 mars 1984 blessuð sé minning hans.

Til minningar um bestu mömmu í heimi......Fjólu Jónsdóttur. Bestu kveðjur  - Guðný

fyrir vin minn Pétur Þorvarðarsson. sem lést í maí 2006. ég sakna þín svo Pétur minn og mun alltaf gera. takk fyrir allt ástin mín. Mér þykkir svo vænt um þig.

Ég vil endilega kveikja á kerti fyrir hana frænku mína, Jónu sem var allveg yndisleg manneskja og hún var mikil kerta manneskja. Hún dó í fyrra og við söknum hennar mjög. Ég veit að henni líður mikið betur núna en áður.
Elsku Jóna frænka saknaðar kveðja
Kristín Svava, Þórdís og Margrét

ÉG VIL KVEIKJA Á 6 KERTUM

 

   FYRIR  ÍSLENSKU ÞJÓÐINA MEÐ VON UM AÐ HÚN BROSI OFTAR OG SÍNI MEIRI KÆRLEIKA

  

                    Guð blessi ykkur öll       Hafdís L Jónsdóttir

 

ég ætla að kveikja á kerti fyrir elsku pabba minn Bjarna Þórir sem lést í bílslysi í Danmörku 5 október 2005. Ég elska þig alltaf pabbi minn og ég sakna þín. Guð geymi þig. Blessuð sé minning þín. Þín Álfrún Auður.

Ég kveiki á kerti fyrir móður mína Ragnheiði Jónsdóttur sem lést í júlí  2006 og kæra mágkonu og vinkonu Marellu Geirdal sem lést í desember 2005. Megi ljósið leiða ykkur áfram á vegi ykkar, minningin um ykkur yljar mér á hverjum degi .  Dísa.

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir elsku son minn sem fórst með hellisey 11 mars 1984 kveðja frá móðir hans og syni sem missti svo mikið - kveðja Hjördis Einarsdóttir.

16. apríl 2007. Það eru nákvæmlega 7 ár síðan að elskuleg vinkona mín kvaddi þennan heim, og það er alltaf eins og það hafi verið í gær. Ég elska þig að eilífu og þín er sárt saknað. Þess vegna vil ég tendra á kerti fyrir hana því hún er algjör engill. Ástar og saknaðar kveðja    -  Kristín Svava 

Í minningu um afa minn - Gulli

Mig langar að kveikja á kerti í minningu um systur mína Sigurbjörgu Ólöfu Guðjónsdóttur sem lést 22.desember 2000. Elsku systir ég sakna þín enn mikið og mun alltaf gera.

Ljós þitt mun ávalt skína í hjarta mínu elsku hjartans bróðir minn. Elsku Pétur Snær minn ég sakna þín ólýsanlega. Þinn elsti bróðir Ari og fjölskylda.

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir elsku son minn hann hjört rósmann sem var skipstjóri á Hellisey frá vestmannaeyjum hún fórst 11mars 1984 guð blessi minningu hans og þeirra sem fórust.

Fyrir Guðjón Hrein,Brynhildi,Frímann Benedikt og Ými Hauk.

Kveiki á kerti fyrir eftirfarandi sem eru látin:
 

Sigríði Sigurbjörnsdóttur
Hólmgeir Árnason
Jóhönnu Árnýju Hólmgeirsdóttur
Sigurjón Ævar Hólmgeirsson
Sigrúnu Björgu Hólmgeirsdóttur
Ragnheiði Jónasdóttur
Olgeir Sigurgeirsson
Sigurð V. Olgeirsson
Aðalgeir Olgeirsson
 

Megi þetta ljós lifa til minningar um elskulegan sambýlismann Hans-Jörn Hinrichsen er lést 64 ára 1.nóv 2005 – we all miss you a lot // Great love Sol

Meigi þetta ljós lifa til minningar um elskulegan son Elvar Þór er lést úr hvítblæði 11.mars 1987 aðeins 11 ára gamall- mamma saknar þín

Ég tendra þetta fallega ljós til minningar um manninn minn, sem lést 2003.  Sakna hans alltaf og alls þess sem við áttum.  Bið góðan Guð að umvefja hann í elsku sinni.  

Takk fyrir allt elsku vinurinn minn besti. Eiginkona

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elskulegu litlu dóttir mína Kolbrúnu Helgu sem ég sakna svo óendanlega sárt.Þangað til að okkur er ætlað að vera saman minnist ég þín á hverjum degi elsku litli engillinn minn.
 
þín mamma.

Mig langar til að biðja þig um að kveikja á 2 kertum til minningar um afa minn, hann hét Sigurbjörn Benidiktsson, lést í Apríl 1987, og ömmu mína sem hét Sigurbjörg Snæbjarnardóttir, lést 1996.
Ykkar er sárt saknað elsku afi og amma, hugsa alltaf til ykkar. Megi ljós Guðs lýsa ykkur á ókunnum slóðum. Ykkar Ella.

Til minningar um Einar Gudmundsson sem lést um bord í Norrænu oktober 2006 kvedja mamma og brædur.

Ég kveiki á kerti í minningu Kolla frænda sem heytir réttu nafni Kolbeinn Þorleifsson og lést þann 28.mars. Hvíl í friði Kolli minn Kveðja Birna

Ég kveiki á kerti í minningu Jóa frænda, hann heytir fullu nafni Jóhannes Björnsson frá Skagaströnd, hann lést þann 24.mars 2007 . Hvíl í friði Jói minn Kveðja Birna frænka

Við viljum kveikja á kerti fyrir Katrínu langömmu sem dó 21. nóvember 2006 eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Þá viljum við einnig kveikja á kerti fyrir Helga langafa, Oddnýju langömmu sem var alltaf svo yndisleg, ljúf og góð kona og manninn hennar, hann Ólaf afa. Allt þetta fólk var með svo fallegt hjarta og eru forréttindi að vera frá þeim komin.

Kær saknaðarkveðja Helgi Ragnar, Kristjana Helga, Dagmar Silja, Móey og Dalía Máney

Ég vil biðja þig um að tendra ljós í minningu sjómannanna sem fórust við mynni Ísafjarðardjúps nú á dögunum, og bið góðan Guð að vera aðstandendum þeirra styrkur og leiðarljós í þessari þungu sorg.

Kristín .

14. mars 2007. Mig langar til að kveikja á kerti fyrir son minn Eiríki Þórðarson sem fórst í nótt með bátnum Björgu Hauks frá Ísafirði og einig fyrir unga piltium honum Unnari sem fórst með honum og votta ég foreldrum hans og aðstandum samúð mína.
Erla Þorvaldsdóttir. 

Mig langar að kveikja á kerti fyrir góðann vin minn Sigurgeir Núma sem lést aðfara nótt sunnudagsins 11. mars 07. Þín er sárt saknað Sigurgeir minn:* Hvíldu í friði Þín vinkona Þóra Elín

Mig langar til að fá að kveikja á kerti til minningar um elskulegu ömmusystur mína hana Sallý sem lést um síðustu helgi. Blessuð sé minnig hennar. Mér mun alltaf þykja svakalega vænt um hana.

Olga.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Freyju ömmu mína sem lést í gærkvöldi 8.mars 2007 eftir veikindi aðeins 73 ára gömul. Elsku amma mín takk fyrir allar þær stundir sem við áttum saman sem ekki er hægt að telja því þær voru svo margar, nú ertu laus við þennan hræðilega sjúkdóm og komin til Bjarma afa og líður örugglega vel.

Amma mín ég mun minnast þín um alla framtíð, ég er döpur í hjarta en ánægð fyrir þína hönd.

Guð geymi þig, kveðja Agnes Þorleifsdóttir.

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir litla engilinn okkar, hana Huldu Ósk, sem fæddist andvana eftir fulla meðgöngu þann 4. nóvember 2001.  Það er óendanlega sárt að fá ekki að kynnast barninu sínu.  Elsku Hulda, við söknum þín sárt.  Ástarkveðjur, mamma, pabbi, Hákon Ingi, Vala Rún og Óskar Aron.

Mig langar að kveikja á kerti til að minnast elsku litla drengsins míns Sem hefði orðið 8 ára á morgun 4. mars 2007. Hvíl í friði, þín mamma, Elísabet.

Langaði til að kveikja á kerti til að minnast Guðmundar Eiðs sem lést 16 des 06        Hvíldu í friði vinur. Kveðja Lolla og Júlli.

Í dag 2. mars 2007 eru þrjú ár frá því að pabbi minn Einar Emilsson lést. Ég vil fá að kvekja á kerti fyrir hann og pabbi ég vona að þú hafir það gott þar sem þú ert, þín er sárt saknað!
Kolbrún.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir pabba minn sem dó 9 Janúar 2006.

Ég sakna þín alveg rosalega pabbi og hugsa til þín á hverjum degi.
Ég vildi að þú væri hjá mér þannig að ég sæi þig, en verð víst að
Sætta mig við að finna bara fyrir þér. Einsog hjóðið sem þú gerir
Alltaf í eldhúsinu rétt eftir að ég ER löggst uppí. Ég vil trúa því
Að það sért þú að láta mig vita af þér. Elska þig mest af öllu.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elsku frænda minn hann Mána sem lést í mótorhjólaslysi allt of ungur. Það kemur ekki sá dagur sem ég hugsa til þín og horfi á myndina af þér sem ég er með heima. Stundum finnst mér þetta svo óraunverulegt að ég átta mig ekki á að þú ert farin. Ég geymi minningar sem ég á um þig í hjarta mínu á góðum stað. Stundum verð ég reið og örg út í þetta líf og skil ekki afhverju þú fórst svo snöggt frá okkur elsku Máni minn, en ég trúi því að elsku afi sem þótti svo vænt um þig og amma séu þér við hlið. Elsku frændi ég veit að þín er sárt saknað af öllum og ekkert fyllir þitt skarð, en við reynum að halda áfram og geymum allar þær minningar sem við eigum um þig vinur minn. Hvíldu í friði frændi, ég mun alltaf muna þig.

Kveðja, Þín frænka Dísa.

Mig langar að kveikja á 5 kertum fyrir 5 fjölskyldumeðlimi sem hafa hvatt okkur í annan heim.

Mæðgurnar Steinun Þóra magnúsdóttir og Sonja W.Guðmundsdóttir, Steinun dó 14 ára gömul eftir að hafa fundist í höfninni í Vestmannaeyjum 1994 og móðir hennar Sonja dó úr krabbameini 49 ára 2006. Sigurður Guðmundsson Smiður, dó úr krabbameini árið 2000 Sigurður var Bróðir Sonju. Guðmundur Ólafsson frá Þykkvabæ. Faðir minn dó úr krabbameini febrúar 1998 og fær hann eitt extra kerti frá mér J Guð blessi þig Pabbi

Guðmundur Guðleifsson Bóndi frá Langstöðum Flóa hafði lifað sínu lífi og hvaddi okkur 97 ára gamall. Guðmundur var faðir Sigurðar og Sonju. Elsku Pabbi,Afi, Frændi og frænkur, megi Guð lýsa ykkur veginn og færa ykkur yl, frið og kærleik. Minning ykkar lifir í hjörtum okkar.

Guðleifur W.Guðmundsson

Þetta ljós mun loga fyrir þig elsku hjartans Árný Hildur mín. Ég bið góðan Guð að veita þér frið og eilífa sálarró. Minning þín mun lifa í mínum huga og hjarta alla tíð. Þín verður sárt saknað, fallega fiðrildið mitt. Þín Helga Jenný.  

til minningar um stúlku sem hefur allt of lengi hefur þurft að berjast fyrir lífi sínu, en hún var hætt að sjá ljósið og tók líf sitt í nótt. Elsku 'Arný Hildur Traustadóttir við sendum ykkur allt það besta sem í sálum okkar býr. Leitaðu í ljósið, Guð og englarnir munu vernda þig. Vonandi færðu friðinn sem þú þráðir svo lengi Sendum foreldrum þínum og systkynum guðs kærleika. Með þökk Hrefna.

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir kærasta minn Tómas Ýmir Óskarson sem lést fyrir ári síðan í dag 25.02.07 í slysi. hans er sárt saknað og mér þætti vænt um að kveikja á tvemur kertum til heiðus hans og Jónasar Atla sem með honum í för var en hann hefur staðið sig svo vel að halda lífinu áframm. mér þykir svo vænt um þá báða og Tómas minn ég hugsa alltaf til þín Minning þín lifir
þín Ásdís Hanna.

Mig langar ad kveikja ljos i minningu um foreldra mina Jakobinu Hermannsdottur og Helga Eliasson.
Blessud se minning ykkar. Maja.

Mig langar ad kveikja ljos fyrir elsku systur mina Ingibjorgu Helgadottur sem lest 25. januar 2007 langt um aldur fram.  Eg elska thig og sakna thin svo otrulega mikid, thu lifir afram i hjarta minu.  Mig langar lika ad kveikja ljos fyrir Dora manninn hennar og fjolskyldu. Maja.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir föður minn sem lést 20.janúar síðastliðinn. Pabbi ég hugsa til þín á hverjum degi. Mikið rosalega sakna ég þín.  Radda.

Ég vil kveikja á kertum fyrir vini og ættingja sem ég hef misst undanfarin 2 árin
Haflínu Marín Björnsdóttur d. í júní '04 eftir löng veikindi
Kristbjörg Lukka Jónsdóttir d. 26.12.04 eftir löng og erfið veikindi
Þórólfur Stefánsson d. 8.12.04 eftir löng veikindi
Sigga og Dóra d. 17.06.05 í umferðarslysi
Sesar Þór Viðarsson d. 04.03.06 í umferðarslysi
Unni Bettý Guðmundsdóttur d.28.08.06 í Umferðarslysi
Svandísi Þulu Ásgeirsdóttur d. 02.12.06 í Umferðarslysi
 
Sakna ykkar allra :** hvílið í friði elskurnar mínar:** Þóra.

Ég vil gjarnan fá að tendra ljós, til minningar um eiginmann minn Bjarna Guðmundsson og móður mína Guðlaugu Sigurðardóttir. Megi ljós þeirra lifa um ókomin ár í hjörtum okkar sem eftir stöndum. Með kærleikskveðju Þuríður Ágústa Gestsdóttir.

Ég vil kveikja á kerti til minningar um móður mína Monu Erlu Símonardóttir, sem lést 4.janúar síðastliðin. Hvíl í friði elsku mamma. Þín elskandi dóttir Valdís Sigríður.

Mig langar að kveikja á kerti til vinar míns Mána Magnússonar, sem lést í bílslysi 7. ágúst 2005. Máni þú varst frábær vinur og ég geymi alltaf þessar góðu minningar sem við áttum saman :* Vildi að þeir hefðu verið fleiri en þeir voru. Ég sakna þín óendanlega mikið :** Veit að þér líður vel þarna uppi :* Olga :*

Okkur langar að kveikja á kerti fyrir Hjöra afa (Hjörleif Jóhannsson) sem dó 03. febrúar.  Afi var rólegur og yfirvegaður maður.  Hann var alltaf til staðar fyrir okkur, góður og blíður.  Hann hafði alltaf tíma til að spila við okkur.  Við munum alltaf muna eftir honum.  Hjörleifur, Ólöf María og Guðni Berg.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir   mæðgurnar  Ásu Pálsdóttur og Önnu Margréti Pétursdóttur, sem létust í umferðaslysi, Ása  lést 4,maí 1999, og Anna Margrét lést 02.febr.2000.  Megi ljósið umvefja ykkur. Addi.

Ég kveiki á kerti fyrir frænda minn Jón Gest, mömmu mína og pabba minn, veröldin er tómleg án ykkar en ljúfar og fallegar mynningar geymi ég í hjarta mínu. Guð gæti ykkar jafn fallega og þið eruð. Aðalheiður St. Eiríksdóttir.

Mig langar til að kveikja á kerti fyrir eiginmann minn sem lést 18 ágúst 2006 eftir harða baráttu í um rúm tvö ár við hvítblæði. Ég sakna þín svo mikið.Þín Bára.

04.02.2007. Í dag á litli englastrákurinn minn, hann Elía Orri, 3ja ára afmæli. Ég vona að honum líði vel, hvar sem hann er staddur. Til hamingju með afmælið, elsku hjartað mitt. Knús og kossar frá mömmu þinni xxx.

Til minningar um móður mína Önnu Erlendsdóttur.

Fyrir afa og ömmu sem gerðu lífið yndislegt og veri þeirra minning eilíf Þórhallur Björn Sigurjónsson og Aðalbjörg Þorvaldsdóttir kv. barnabarn.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir elskulega frænku mína Rögnu Sölvadóttir sem lést í morgun megi guð geyma hana og blessa fjölskyldu hennar. Elsku Ragna ég veit að guð geymir þig, þín frænka Hjördís Hauksdóttir.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir hann Valtýr vin minn, eftir 2 daga eru 2 mánuðir síðan þú fórst frá okkur vinur og mér finnst eins og þetta skelfilega slys hafi gerst í gær, ég hugsa mjög mikið til þín og ég sakna þín einnig mjög mikið og finnst lífið ekki vera sanngjarnt við okkur hin sem sitjum eftir með sárt ennið og full af söknuði og sorg, það sakan þín allir svo mikið. En þér líður vel þar sem þú ert núna. kveðja Birna Ármey.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir systir mina sem lest 25.janúar 2007 úr krabbameini. Minning þin er ljós í lífi okkar. Einnig vill ég kveikja á kerti fyrir mann hennar og fjölskyldu. Kveðja Helga og fjölskylda.

Mig langar að biðja þig að tendra ljós fyrir tengdaföður minn sem lést langt fyrir aldur fram úr krabbameini 1999, fyrir ömmu mína sem einnig lést úr krabbameini 2003 og fyrir litla drenginn minn sem fæddist eftir 24 vikna meðgöngu í júní 2000, og dó eftir tvo og hálfan sólarhring!  Hafið þökk fyrir allt og allt megið ljósið lýsa ykkur! Blessuð sé minning ykkar.  Kveðja Auður Ósk.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir systur mina sem kvaddi þetta líf miðvikudagskvöldið 25 janúaar. Sakna þín systir mín.

Ég kveiki á kerti24.Janúar 2007  fyrir  ástkæran vin hann Gumma Eið okkar sem lést 16 Des 2006
minningin   lifir um yndislegan dreng Guð  blessi þig elsku vinur.Vallý og fjölskylda.

Mig langar að kveikja á kerti fyrir vin minn hann Valtýr Guðmundsson sem lést 8.des 2006 í hörmulegu bílslysi þín verður sárt saknað af öllum sem þú þekktir og vonandi ertu kominn til hans afa þíns að smíða saman :) þinn góði vinur Lalli.

Kveikji mörg kertii vegna látinnar vinkonu sem lést fyrir áramótin Sigrún J Jóhannsd hét hún við vorum nánir vinir, ég sakna hennar mikið ég grét mikið eftir að hún dó. Kveðja Ingi Hrafn.

Ég kveiki á kerti fyrir skólabróður minn, Jóhann Pálmason, sem lést 17. janúar.Ég er ekki alveg að ná þessu og ég skil ekki að þú hafir fundist þú þurfa að fara en ég bið fyrir þér og sé þig fyrir mér hjá Guði. Guð blessi fjölskyldu Jóa. Kveðja frá Margréti

Mig langar að kveikja á kerti fyrir Jón Ægisson sem lést 3 janúar 2007. Þín er sárt saknað H.H

Mig langar að kvekja á kerti fyrir elsku pabba og ömmu sem er nú saman  ég sakna ykkar mjög mikið.Ykkar Sonja.

Bið ykkur að láta loga ljós fyrir Birnu vinkonu mína sem varð bráðkvödd á þriðjudaginn 16.01, 66 ára gömul ég var búin að þekkja hana í 32 ár og aldrei, aldrei bar skugga á þessa vináttu okkar við gátum alltaf gert að gamni okkar og ég veit að ég á eftir að sakna hennar sárt. Var rétt óbúin að hringja í hana þegar að sonur hennar hringdi og tilkynnti okkur þennan sorglega atburð. Biðjið fyrir henni og fólkinu hennar fyrir mig með kærri kveðju og þökk. PSJ.

Mig langar til að kveikja á kerti í minningu mannsins míns sem hefði orðið 34 ára í dag 17. janúar.
Þín er sárt saknað elsku Craig minn. Þín Sigrún. We love and miss you so much daddy. From Eydís, Ryan and Jessica.

16.01.2007. Í dag hefði einn ágætur vinur okkar orðið 57 ára, hann lifði of stutt.  Vinafólk

Mig langaði að kveikja á kerti fyrir litla stelpu sem hét Svandís Þula Ásgeirsdóttir, hún dó i bílslysi aðeins 5 ára gömul.hún var gamla leikskólasystir litlu systur minnar,þær léku sér stundum saman og líka frænka eins besta vins míns sem heitir Júli.en ég vildi bara kveikja á kerti fyrir þig,það sakna þín allir þvi þar sem þú varst var alltaf gaman og bros þitt var svo fallegt. nú er stór skær stjarna á himninum sem þú átt. vonandi ertu komin á betri stað.sakna þín ósköp mikið.hvíldu í friði, eg veit að ég þekkti þig ekki mikið en ég votta alla mína samúð til fjölskyldu og ættingja!
 
bjó til ljóð fyrir þig;
stundum getur lífið verið ósanngjarnt,
stutt en gott,
við minnumst þín á góðann hátt
elsku barnið gott,
við pabbi þinn fórum að leiði þínu í dag
það var eins fallegt og þú,
sú ást sem þú gafst frá þér
bjarta vonin okkar svo ung
þú áttir þér framtíð,
sú framtíð var björt,
 
höfundur; þórdísýr(ég) þórdís ýr rúnarsdóttir

Mig langar að kveikja á kerti fyrir besta vin minn hann Viðar Þór Ómarsson sem dó aðeins 7 ára gamall 26. júní 1998 í bílslysi Viðar þú er besti vinur minn og ég sakna þín svo mikið. Um daginn var ég að hugsa um þig og þá fattaði ég að 7. október 2007 hefðir þú orðið 16 ára gamall sem er svakalega spes aldur, ég man þegar ég var 16 ára mér leið eins og ég væri orðin fullorðin kona og ég veit að þú hefðir orðið svo stoltur á að verða 16 ára.
Ég gæfi allt sem ég á og allt sem mig langar í bara til að hitta þig einu sinna aftur til að seigja þér hvað ég elska þig mikið og að ég sakna þín svo mikið. Ég man þegar mamma kom inn í herbergið mitt til að seigja mer hvað hefði gers og ég gat ekki hætt að gráta . Og ég man eitthvað seinna þegar ég labbaði upp stigann heima og ég sá mömmu þina og ég fann að tárin fóru að renna niður því bara að sjá hana minnti mig svo mikið á þig og ég verð að seigja að ég var svo að vona að þú værir með henni en nei , en hún kom samt með gjöf frá þér , alltaf þegar þú komst í heimsókn þá komstu alltaf með gjöf og þú vast búin að kaupa fyrir næstu ferð því það var ekki svo langt þanga til að þú ættir að koma. Og Guð þú átt litla systir hún er alveg jafn falleg og þú og ég veit að þú ert að passa hana eins og alla sem elska þig.
Ég sakna þín svo mikið og ég vona að það fara vel um þig þar sem þú ert og eins gott að þú ert að passa pláss fyrir mig svo ég getir verði hjá þér þegar minn tími er kominn.

If you're asking if I need you,

the answer is forever....

If you're asking if I'll leave you,

the answer is never....

If you're asking what I value,

the answer is you....

If you're asking if I love you ,

the answer is I do........


Þín vinkona Sirrý.

Ég kveiki á kerti fyrir mág minn Árna Sigurðsson, sem lést af völdum krabbameins í sl. sumar.  Minning hans lifi um ókomna tíð. Lilja Einarsdóttir.

Póstur