

|
Dagur 19 - Jólavefur Júlla 2009 Í dag er laugardagurinn 19. desember.
Í nótt kom áttundi
jólasveinninn til byggða "Skyrgámur / Skyrjarmur"
Ég vil þakka öllum kærlega fyrir hin fjölmörgu
bréf,öll fallegu orðin um vefinn og skrif í gestabók jólavefsins. Mér finnst leiðinlegt að geta ekki
svarað öllum. Haldið áfram að
senda bréf , ég segi bara við ykkur þúsund þakkir og vefurinn er til
fyrir ykkur, af því að þið eru svo dugleg að heimsækja hann og senda
bréf.
Þessi
jólasaga er ritgerð eftir barn í grunnskóla og er um Jesús frá
Þetta setti ég inn 2005.
|

|
Jólasveinamynd dagsins (19)
|


| Halló allir! Skyrgámur mætti í nótt, rumurinn sá. . Í mallanum í dag eru lifandi HC Andersen ævintýri. Snæfinnur. |

|
Á aðventunni 2002 fékk Jólavefurinn þetta skemmtilega bréf , mér fannst það svo gott og nauðsynlegt fyrir okkur að hugsa um innihaldið og þetta á nú ekki íst við í dag. Ylfa og Björgúlfur Takk fyrir þetta. Hæ elsku Júlli og takk fyrir vinninginn. Við erum svooooo glöð, og ætlum að gefa (eins og við vorum búin að lofa hvoru öðru, við Björgúlfur) vinninginn til mæðrastyrksnefndar. Við gerðum svona samkomulag í byrjun des, að taka þátt í allskyns happadrættum og netleikjum, og gefa alltaf vinninga (ef einhverjir yrðu) til góðgerðamála. Það var elsku drengurinn minn sem stakk upp á þessu, því að bæði í sunnudagaskólanum, svo og í skólanum hefur undanfarið verið rætt mikið um fátækt. Núna undanfarið hefur Björgúlfur verið afskaplega upptekinn af þessu og hefur til að mynda sett alla vasapeninga sína í hjálparstofnunarbaukinn frá
kirkjunni, og linnir ekki látum fyrr en allir gestir sem til okkar koma hafa sett eitthvað smáræði í baukinn!!! Ég hélt að þetta yrði kannski til þess að við hættum að fá gesti, :) en svo fór nú ekki sem betur fer. |

|
|
|
Ein álfa, huldufólks eða
jólasaga á dag Benidikt hét prestur í Aðalvík á Hornströndum sem síðar fluttist að Einholti á Mýrum. Hefur Kristín dóttir hans sagt eftirfylgjandi sögu eftir eigin sögusögn föðurs síns sjálfs. En Kristín hefur aftur sagt (orðin þá mjög gömul) skynsömum nútíðarmanni þessa sögu sem nú segir:
Netútgáfan |
