Dagur 4 - Jólavefur Júlla 2009

Í dag er föstudagurinn 4. desember.

 

Bros dagsins.....

Fegurðin sem býr ó brosi þess sem elskar, og sýnir samúð glatast aldrei.
H.E

 

Jólasveinamynd dagsins (4)

  Kíkið á jólasögusíðu krakka !

Krakkar ! Hér geta allir sent inn sögur, allar sögur birtar. Munið nafn, aldur og hvaðan þið eruð. 

Núúmmmmmerrrrr 4.
Í mallanum í dag er spennadi jóladagatal með þrautum...lítið á og spreytið ykkur.

 

Getraun 3 - Frá Mývatnssveit - Dimmuborgum
 

 



 

Getraunirnar eru fyrir alla. Öllum er  heimilt að vera með á hverjum degi.

 
Úr hvaða jólamynd er þessi persóna ?


 

Það verður getraun á hverjum degi fram til 17 desember


Í 10 ár hefur Bókaútgáfan Hólar gefið bækur í verðlaun og er þeim hér með þakkað kærlega fyrir tryggðina og vinsemdina allan þennan tíma, en að þessu sinni verða þeir ekki með.
Í ár verða vinningar frá sjálfum mér (Júlli :) ) Sjá vinningasíðu 
- VINNINGASÍÐA

Öll rétt svör lenda í pottinum og við munum draga úr honum 10 vinninga 16. DESEMBER.


Munið að láta fylgja með nafn,  og heimilisfang.   - ( Ath það er nóg að vita svarið við annari getrauninni, þá eruð þið komin í pottinn um að gera að reyna við báðar og giska. ) - Það er hægt að svara þessum getraunum til kl 22.00 5. desember. Svar HÉR.

 

Ein álfa, huldufólks eða jólasaga á dag

 

ÁLFAR  Í  LITLA - LANGADAL

 Egill hét maður sem bjó í Litla-Langadal á Skógarströnd. Guðrún hét kona hans; þau áttu tvö börn sem Egill og Dýrfinna hétu. Guðrún var Þorleifsdóttir; hún var lengi ekkja eftir mann sinn og bjó í Langadal. Það var almæli að oft yrði þar vart við álfa. Var þar hóll einn skammt frá túni og talinn álfabær, og víðar voru þeir staðir þar sem menn höfðu trú á að álfar byggi í. Það er sögn manna að áður en Guðrún fór að búa þar hafi kaupamaður einn verið að slá þar á túninu, en húsfreyja var að raka þar skammt frá honum og lét vöggu með barni standa skammt frá sér. Kaupamaður sagði þá við konuna: "Betra er að þú gætir barnsins; sér þú ekki barnafjöldann sem er að leika sér kringum vögguna?" Konan kvaðst engin börn sjá, en hljóp þó að vöggunni. Sagði kaupamaður þá að við það hrykkju þau öll á burt í hólinn. En síðar var það þegar Guðrún bjó í Litla-Langadal að þar komu fjárrekstrarmenn undan Jökli sem oftar og báðust gistingar og húsa fyrir fé sitt. Var þeim vísað að fjárhúsi einu, en þess var enginn kostur að koma fénu inn í húsið og það þó féð væri húsvant, það hrökk hvað eftir annað frá dyrunum eins og það sæi þar eitthvað inni sem það hræddist. Gekk þá einn þeirra inn í húsið og sá hann þar þá konu sem var að rugga barnsvöggu. Hann bað hana þá hóglega að víkja sér frá svo féð yrði látið inn. Svaraði hún því engu, en tók vögguna undir hendi sér. Sá hann þá að hliðveggurinn opnaðist svo hann sá út og fer hún þar út og hvarf honum, en heill var veggurinn þegar hann þreifaði um hann þar sem honum hafði sýnst opið. Hann sagði síðan frá þessu og var hann álitinn óskreytinn og þókti mönnum Guðrún furða sig lítið á þessu. Það var og vani hennar að láta sitt kerti í hvert hús af öllum bæjarhúsum hvert fangadagskvöld fyrir jól og gamlaárskvöld og jafnan eitt á felhellu. Byggði hún og inn og út með þessum orðum. "Veri þeir sem vera vilja og fari þeir sem fara vilja." Þau kvöld lokaði hún bænum sjálf, en aldrei fyrir miðnætti. Trúðu því margir að þessar aðfarir hennar yrðu henni að búsæld og jafnan voru peningshöld hennar góð og betri kölluð en nágranna hennar. 

 Netútgáfan