Eftir Júlíus Júlíusson - Jólavefur Júlla 2012
Það var einu sinni jólatré
sem var búið að þjóna eigendum sínum
vel og lengi, svo lengi að öll börn fjölskyldunnar sem
voru 7 talsins mundu ekki eftir neinu öðru tré. Tilhlökkunin
var alltaf mikil hjá krökkunum þegar tréð var tekið niður af háaloftinu
og pabbinn dustaði rykið af gömlu pappaöskjunum sem skrautið
var geymt í.Í þessum öskjum var fallegt skraut,marglitar
glitrandi kúlur,litlar bjöllur,pokar með gömlum jólasveina
og helgimyndum á. Þetta skraut var búið að
vera til jafnlengi og tréð,öll börnin áttu
svo fallegar minningar í sambandi við skrautið og gamla
góða jólatréð.Það var kominn desember og jólaundirbúningurinn
í fullum gangi,laufabrauðið hafði verið steikt og
búið að koma því á sinn stað í
búrinu,kortagerð og jólaföndur voru á lokastigi,ilmurinn
af piparkökunum og öllum hinum smákökunum var dásamlegur.
Uppi á háaloftinu beið jólatréð,það
vissi alltaf að þegar jólastjarnan var komin á
Kaupfélagið,nálgaðistsá tími sem tréð
fengi að njóta sín.Uppi á háaloftinu var
lítill gluggi sem sneri að Kaupfélaginu,inn um þann
glugga skein alltaf yndisleg jólabirta í desember, það
var sú birta og ómurinn af söng jólasveinanna
sem sungu fyrir börnin á svölum Kaupfélagsins
sem kom jólatrénu í gott hátíðar
og jólaskap. Dagarnir liðu hratt í jólaundirbúningnum,heimilið
var að verða tilbúið fyrir jólin, krakkarnir
voru komnir í frí úr skólanum fyrir nokkrum
dögum, þau höfðu verið dugleg að laga til hjá
sér og hjálpa mömmu sinni við ýmislegt sem
þurfti að gera fyrir þessa miklu hátíð
ljóss og friðar. Þorláksmessudagur rann upp, veðrið
var virkilega fallegt,um nóttina hafði snjóað og
úti var ofurlítið frost,allir voru ánægðir
þegar þeir litu út , allt var svo hreint , fallegt og
jólalegt um að litast.Yngstu börnin fóru út
að leika sér en þessi eldri voru að hjálpa
til,öllum fannst þessi dagur svo lengi að líða
, allir voru spenntir. Dagurinn leið samt áfram og var að
kveldi kominn, það var einmitt á Þorláksmessukvöld
sem fjölskyldan var vön að skreyta jólatréð
, þetta var eitt af því
sem krökkunum þótti einna mest spennandi og hátíðlegt
fyrir jólin.Klukkan átta þegar allir voru búnir
að borða og frágangi eftir matinn lokið, pabbinn
fer út og sækir þar tré nýhöggvið
grenitré sem hann hafði komið með um leið og hann
kom heim úr vinnunni,hann var líka með lítinn
kassa undir hendinni, í þessum kassa var mikið af fallegu
nýju jólaskrauti sem hann hafði keypt fyrr um daginn.
Yngri krökkunum fannst þetta mjög spennandi, og þeim
eldri líka en samt fannst þeim eins og eitthvað væri
að, mamman varð mjög hissa.Pabbinn setti tréð inn
í stofu,festi það svo í fótinn og allir
hjálpuðu til við að koma nýja glitrandi
skrautinu á,í kassanum voru rauðar og grænar kúlur,
litlir sætir jólasveinar og stjörnur.Allt var þetta
til þess að hengja á nýja tréð.Þegar
allt var komið á tréð,vafði pabbinn að
síðustu langri hvítri lengju utan um tréð
“ jæja sagði pabbinn, þá er tréð orðið
fallegt og virkilega jólalegt”jú vissulega var tréð
mjög fallegt og jólalegt , en eitthvað vantaði samt
,hugsaði mamman með sér.Nú var komið að háttatíma á þessu Þorláksmessukvöldi,
þegar klukkan sló tólf , voru allir sofnaðir. Aðfangadagur þessi yndislegi dagur
sem allir biðu eftir,byrjaði eins og dagurinn áður,
bjartur, fagur og bætt hafði lítið eitt á snjóinn
sem gerði jólin enn hátíðlegri. Krakkarnir
drifu sig á fætur, þau gátu ekki sofið lengur
fyrir spenningi. En það var eitthvað sem vantaði
fyrir þessi jól, þeim fannst það bara en voru
ekki viss hvað það var. Krakkarnir fóru út
að leika sér,einn strákurinn sem var 11 ára hitti
vin sinn úr næstu götu, þeir fóru að
leika sér saman, bjuggu til snjókall, á meðan
ræddu þeir um jólin, vinurinn var ekki mjög spenntur
fyrir jólunum, mamma hans og pabbi voru svo fátæk,
þau áttu til dæmis ekki neitt jólatré,
einnnig yrði lítið um gjafir þessi jól. Þegar
þeir höfðu lokið við snjókallinn sem þeir
kölluðu Snæfinn, var
kominn hádegismatur. Í matartímanum sagði strákurinn
frá öllu saman með vin sinn. Eftir
matinn þá kallaði pabbinn alla inn í stofu,
hann bað alla að setjast og hlusta á
sig, hann spurði alla að því hvort þau
vildu ekki gefa stráknum í næstu
götu og fjölskyldu hans nýja tréð og nýja
skrautið og þau mundu nota þeirra gamla góða
tré,júhhh sögðu allir og krakkarnir stukku í
fangið á pabbanum, fallegt bros færðist yfir andlit
mömmu. Nú varð uppi fótur og fit, pabbinn og strákurinn
sem átti vininn tóku nýja tréð og fóru
með það til vinarins ásamt peningum í poka
sem strákurinn hafði hrist úr sparibauknum sínum.
Vinurinn og hans fjölskylda urðu mjög glöð og sögðu
að þetta væri besta jólagjöf sem þau
hafi nokkurn tíma fengið, mamma vinarins þakkaði þeim
vel fyrir með tárin í augunum.Nú var farið
og opnað uppá háaloft til þess að sækja
tréð, þeirra ekta jólatré og allt skrautið
sem þeim þótti svo vænt um.
Um miðjan dag var búið að skreyta tréð , það var dásamlega fallegt og allir voru komnir í sitt besta jólaskap, undir öllu fallega skrautinu brosti svo gamla góða tréð. |
Jólasögur af Jólavef Júlla Jólin koma í kćrleikslandi ( J.J ) Ég veit ađ mamma grćtur á jólunum Jólatöfrar " Eđa var ţetta raunverulegt " ( J.J )
|