Jólavefur Júlla 2012 Jólasveinar á Svölum Kaupfélagshússins á Dalvík Jólasveinarnir hafa komið á svalir Kaupfélagsins á Dalvík í tugi ára, ég er ekki búinn að fá það á hreint hvenær þeir byrjuðu, síðustu upplýsingar sem ég hef, er að þeir hafi byrjað fyrir 1960, hér með auglýsi ég eftir upplýsingum um það hvenær þessu var startað og upphafsmönnum,og öllum þeim upplýsingum sem einhver lúrir á. Þarna sjáum við nokkra
kappa, Stúfur á Jólavseinarnir mæta alltaf kátir og hressir um miðjan desember ár hvert með epli í poka, fara upp á svalirnar, segja sögur og syngja öll jólalögin, allir taka undir, stórir sem smáir þegar söngnum líkur þá koma þeir niður til fjöldans og gefa öllum epli, eplin eru þau bestu sem maður hefur smakkađ, svo er dansað kringum jólatréð, þetta eru dásamlegir kallar, allir sem einn. Bjúgnakrækir að
störfum, að dreifa þessum dásamlegu
Gekk ég yfir sjó og land....klapplandi... Það eru margskonar farartæki
sem þeir nota blessaðir, Hér eru þeir að mæta
með eplin í poka, sennilega hafa þeir Frá því að ég var í barnavagni þá hef ég alltaf farið að sjá jólasveinana á svölunum, fengið epli, nema eitt ár þá missti ég af þessari skemmtilegu og ómissandi uppákomu, en þá bjó ég í Reykjavík, ég verð að viðurkenna að mér leið hálf undarlega þennan dag, þegar ég vissi að jólasveinarnir væru að koma á svalirnar á Kaupfélaginu á Dalvík. Júlíus Júlíusson
Jólavefur Júlla 1999 - 2000 - 2001 - 2002 - 2003 - 2004 - 2005 - 2006 - 2007 - 2008 - 2009 - 2010 - 2011 - 2012 Copyright Jólavefur Júlla ©
|