Á einum bæ var einu
sinni niðursetupiltur einn er Jón hét, hér um bil sex ára gamall
er saga þessi byrjar. Kerling ein tók drenginn að sér til
þjónustu og allrar umönnunar. Lágu þau bæði í fjósinu og var
þeim færður þangað maturinn.
Kerling tók eftir því að drengurinn
rétti oft bita og sopa af mat sínum fram á pallskákina. Fer hún
þá að spyrja hann um það, en hann segir það sé kona í básnum sem
sé að rétta höndina upp á móti. Kerling leggur ekkert til þess,
en gjörir slíkt hið sama. Fer svo fram um veturinn.
Um vorið eina nótt dreymir kerlingu
konu sem þakkar henni hugarlátsamlega fyrir sig og sína og
segist ekki geta launað þeim eins og vert væri - "en þar eð ég
veit að þú annt drengnum engu minna en sjálfri þér þá vil ég
bjóðast til að taka drenginn heim til mín, og vill maðurinn minn
sem er prestur hér í byggðarlaginu kenna honum til prests og
veita honum alla forsorgun sem börnum okkar". Þessu játaði
kerling í draumnum.
Um morguninn er kerling vaknar er
drengurinn horfinn. Þykir henni þetta kynlegt, en hugsar samt út
í drauminn. Tíðrætt varð mönnum um hvarf hans, en sló því bráðum
í þögn, en alltaf hafði kerling óyndi upp frá því.
Að tíu árum liðnum eða tólf árla
morguns einn góðan veðurdag er kerling fyrir utan fjósdyrnar að
skvetta úr kollu sinni. Sér hún hvar tveir menn koma vel ríðandi
heim völlinn, annar í rauðum kjól á eins litum hesti, annar
maður aldraður á dökkum kjól og samlitum hesti.
Numdu þeir staðar gagnvart kerlingu og
ávörpuðu hana blíðum orðum. Kerling horfði á þá stundarkorn, en
féll í grát.
"Af hverju grætur þú, kerling mín?"
segir hinn aldraði maður.
"Því," segir kerling, "að mér sýnist
hinn ungi maður svo násvipaður drengnum sem hvarf frá mér
forðum."
"Það er rétt sem þér sýnist, fóstra
mín," segir rauður, "og þetta er síra Ásmundur fóstri minn. Er
hann nú búinn að kenna mér til prestskapar, en ætlar að vígja
mig á morgun og undireins vígja okkur Álfrúnu dóttur sína saman
og mig. Nú býð ég þér heim til mín, en bregtu þér snöggvast inn
í bæ og segðu hvað ævi minni hefir liðið og hvernig nú er
komið."
Kerling fór nú á stað og halda menn að
hugurinn hafi borið hana hálfa leið; kom svo aftur að vörmu
spori. Setti hann fóstru sína á bak fyrir aftan sig og hurfu
þeir síðan. -
En hvort hún hefir munað eftir að
flytja með sér kollu sína, þar um er ekki getið.