9. desember

Á fjórða áratug síðustu aldar kom fram á sjónarsviðið sería, sem sló öllum öðrum svo rækilega við, að segja má að engin henni lík hafi verið fundin upp. Perurnar í henni voru afar framúrstefnulegar, minntu einna helst á djúkbox. Ofan á ljósgjafanum sjálfum kom glerstautur með gulum, rauðum, grænum eða bláum vökva og skömmu eftir að stungið var í samband tóku bólur að stíga upp á við í vökvanum. Það var bandaríska rafeindafyrirtækið XXXX sem fyrst kom með þessa óvenjulegu jólaseríu árið 1945, skömmu eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk. Serían var fljótt mög vinsæl og breyddist hratt út á nokkrum árum.Fyrst í stað var miðað við að átta perur væru í hverri ljósakeðju, en þeim fjölgaði þegar árin liðu. Í sumum tilvikum gat fólk líka keypt perur og sett þær í gömlu seríurnar sínar, ef svo vel vildi til að perustæðin voru af réttri stærð. Galdurinn við að láta bólurnar stíga í perunum var að hafa í þeim efni með lágt suðumark. Þegar perurnar í botninum hitnuðu tóku loftbólur að stíga upp á við. Helst þurftu perurnar að standa beint upp til að bólurnar yrðu almennilegar. Jólaseríur sem þessar eru orðnar fáséðar.

Svörin við öllum spurningunum í dagatalinu er að finna á jólavef Júlla

icon_06

Hvað hét Bandaríska rafeindafyrirtækið sem að kom fyrst með þessa seríu ?

Noma
Aroma
Mona