Jólabakstur - Uppskriftir
Piparkökuhús
3 dl sýróp
800 g
sykur
500 g smjör
1 msk. engifer
2 msk. negull
2 msk. kanill
1 egg
1.800 g hveiti
1 tsk. natron
Aðferð
Hnoðið allt saman og kælið í ísskáp í 34 klukkustundir. Fletjið út deigið og þykktin á að vera um hálfur centimetri. Stækkið teikningarnar tvisvar til þrisvar eða eftir vild.
Skerið út eftir teikningum og merkið í deigið fyrir bjálkum í veggi og þakplötum. Bakið á bökunarpappír við 175 C í um það bil 1216 mín eða þar til fullbakað.
Skerið út glugga og hurðir að vild og bakið líka. Hurðina má hafa opna upp á hálfa gátt og síðan eru þetta gluggahlerar sem geta skreytt húsið. Milliloftið þarf að ná út fyrir húsið sjálft þannig að hægt sé með góðu móti að gera svalir. Tröppur getur hver og einn gert með því að búa til renning úr deiginu. Þrepin eru svo teiknuð á með sprautuðu súkkulaði.Hliðar hússins eru settar saman með tertuhjúp.
Glassúrinn sem notaður er í snjó er búinn til úr tveimur eggjahvítum og 200400 g af flórsykri. Eftir að búið er að laga glassúrinn verður að stífþeyta hann.
Handriði er sprautað á bökunarpappír. Í það er notaður súkkulaðihjúpur. Þegar handriðið er síðan fest við húsið er Súkkulaðihjúpurinn líka notaður til þess.
Í lokin sé húsið skreytt með því að gera grýlukerti og svo er flórsykri sigtað yfir í lokin.
Piparkökur
500 g hveiti
250 g sykur
180 g smjörlíki
4 tsk. kanill
2 tsk. negull
2 tsk. engifer
2 tsk. natron
1/4 tsk. pipar
8 msk. síróp
8 msk. mjólk
Aðferð
Allt hnoðað saman og rúllað í sívalninga, skorið í sneiðar og penslað með vatni á hverja sneið. Bakað við 200 C í 1520 mín.
Hálfmánar
250 g hveiti
150 g smjörlíki
100 g sykur
1 egg
1 tsk. lyftiduft
tsk. hjartarsalt
vanilludropar
rabarbarasulta
Aðferð
Smjörlíki mulið saman við hveitið ásamt lyftiefnum. Sykri blandað saman við og vætt í með eggi og vanilludropum. Deigið síðan hnoðað uns það er slétt og sprungulaust. Síðan er gott að láta það bíða í kulda yfir nótt. Deigið flatt út og mótað í kökur ca. 7 cm í þvermál. Sulta látin á hverja köku og þær brotnar til helminga og brúnum þrýst létt saman.
Lagterta ( Randalín)
500 g hveiti
250 gr smjörlíki
250 gr sykur
4 tsk lyftiduft
4 egg
1/4 tsk hjartasalt
1 tsk vanilludropar.
Aðferð
Venjulegt, hnoðað deig, skipt í 4 hluta, breitt út á smurðar ofnplötur og bakað við 200 c . Botnarnir eru síðan lagðir saman með sveskjusultu, eða annari eftir smekk. Það er óhætt að baka hana með góðum fyrirvara hún geymist vel.
Súkkulaðistangir
424 gr.smjörlíki
640 gr. hveiti
4-5 mats kakó
424 gr. sykur
2 egg
1 tsk.vanilludropar
Aðferð
Hnoðað og rúllað út í lengjur sem ég sting út með glasi eða staupi til að fá allar stangirnar jafn stórar. Svo er ýmist hægt að dýfa þeim í perlusykur eða eins og var gert í gamla daga mylja niður molasykur og dýfa í. Bakað við 200°c.
Hnetusmjörskökur
¼ bolli smjörlíki
¾ bolli sykur
¾ bolli dökkur púðursykur.
1 teskeið vanillusykur
1 stórt egg
2 stórar eggjahvítur létt slegnar
3 bollar hveiti
2 teskeiðar matarsódi
ögn af salti
1 bolli gamaldags hnetusmjör
Aðferð
Blandið smjörlíkinu og sykrunum saman í hrærivél eða mixara. Bætið vanillu, eggjinu og eggjahvítunum saman við, hrærið vel. Blandið saman hveitinu, sótanum og salti og bætið út í hræruna. Látið loks hnetismjörið saman við og hrærið vel. Setjið á plötu með teskeið og sléttið með gafli. Bakið í forhituðum ofni þar til kökurnar eru ljós brúnar, um 10 mín.
Sörur
400 g fínmalaðar möndlur
6 dl flórsykur
5 eggjahvítur
Aðferð
Blandið saman möndlum og flórsykri. Stýfþeytið eggjahvítuna og blandið möndlu/sykrinum saman við. Bakið við 180°C í u.þ.b. 15 mín.
Krem:
1 dl sterkt kaffi
1 msk hveiti
1 eggjarauða
125 g mjúkt smjör
1/2 dl sykur
1/2 tsk vanillusykur
250 g hjúpsúkkulaði
Aðferð
Sjóðir saman kaffið og hveitið þar til það þykknar og kælið. Blandið eggjarauðunni við kaffiþykknið. Hrærið saman smjör, sykur og vanillusykur þar til blandan verður létt og ljós en þá er kaffikreminu blandað saman við.
Anískökur
1/2 bolli smjörlíki
1 bolli sykur
1 egg
1/2 tsk. vanilludropar
1 1/3 bolli hveiti
1/2 tsk. salt
1 1/2 tsk. lyftiduft
1 1/2 tsk. anísfræ
Aðferð
Smjörlíki og sykur hrært ljóst og létt. Eggi og vanillu bætt í og hrært vel. Hinu öllu bætt saman við og hrært vel á meðan. Deigið er mótað í lengju, vafið inn í smjörpappír og kælt. Skorið niður í þunnar sneiðar og bakað í u.þ.b. 8 mínútur eða þar til kökurnar eru orðnar ljósbrúnar.
Mömmukökur
125 gr smjörlíki
125 gr sykur
250 gr sýróp
1 stk egg
500 gr hveiti
2 tsk engifer
1 tsk natrón
krem: 75 gr smjör
125 gr flórsykur
Aðferð
Smjörlíki, sykur og sýróp er hitað í potti. Síðan er
það kælt og eggið sett samanvið. Hveiti, natrón og engifer er síðan sáldrað yfir og hnoðað uppí. Látið bíða yfir nótt.
Pabbakossar
200 g smjör
100 g sykur
350 g hveiti
1 tsk allrahanda
4 msk mjólk
Aðferð
Hrærið saman smjör og sykur þar til blandan verður mjúk. Blandið mjólk, hveiti og allrahanda saman við þar til samfellt deig, hnoðið á borði. Fletjið deigið út og mótið kringlóttar kökur og gerið stjörnu, hjarta eða annað munstur í helminginn af kökunum. Bakið á ofnplötu við 180°C í 15 mín. Leggið kökurnar saman með súkkulaðikremi. Fallegt að strá flórsykri yfir kökurnar áður en þær eru bornar fram.
Súkkulaðikrem:
150 g Síríus Konsum suðusúkkulaði
100 g Odense Blöd Nuogat
25 g smjör
Bræðið allt saman í vatnsbaði og látið aðeins kólna.
Hnetutoppar
250 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
125 g sykur
1 stk. egg
175 g smjör
1/2 tsk. vanilludropar
3/4 tsk. sítrónudropar
Heilar hnetur
Aðferð
Setjið allt hráefnið saman í hræriskálina og vinnið rólega saman, rúllið út í pylsu og kælið, skerið svo niður. Setjið á bökunarpappír, penslið yfir með hrærðu eggi, stráið smá sykri yfir. Stingið heilli heslihnetu í miðjuna og bakið við 180° í 10-12 mín.
Lakkrístoppar
4 stk. eggjahvítur
120 g sykur
100 g púðursykur
200 g lakkrískúlur
60 g suðusúkkulaði
1 msk. hveiti
Aðferð
Þeytið hvítur vel og setjið sykur út í. Þeytið þar til sykur er vel uppleystur, saxið súkkulaðið og brytjið niður kúlurnar. Veltið þeim upp úr hveitinu, blandið súkkulaðinu og kúlunum saman við þeytinguna með sleikju, setjið á plötu með tsk. og bakið við 170° í 11-13 mín.
Vanillukransar
500 g hveiti
400 g smjör
300 g strásykur
1 egg
vanilla
Aðferð
Hrærið öllu saman og hnoðið þar til degið verður mjúkt (ef það er of þurrt má setja ögn af vatni). Rúllið upp í lengju ca 7 mm þykka. Skerið lengjuna í ca 8 cm lengjur og gerið hring úr hverri. Raðið krönsunum á smurða ofnplötu með svolitlu bili á milli. Bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 6 mínútur.
Gyðingakökur
150 stk. 6 cm í þvermál
425 g (rúml. 8 dl) hveiti
tsk. hjartarsalt
150 g (rúml. 1 dl) sykur
200 g smjör (ekki smjörlíki)
2 lítil egg
10 steyttar kardimommur eða tsk. kardimommudropar
2 eggjahvítur ofan á
100-150 g afhýddar möndlur ofan á
1 dl sykur ofan á
Aðferð
- Setjið hveiti, hjartarsalt og sykur í skál, myljið smjörið út í. Setjið síðan eggin saman við ásamt steyttum kardimommum eða kardimommudropum. Hnoðið samfellt deig. Geymið á köldum stað í 1 – 2 klst.
- Fletjið deigið mjög þunnt út, stingið út kringlóttar kökur með glasi. Raðið á bökunarpappír á bökunarplötu.
- Setjið eggjahvíturnar á disk og sláið sundur með gaffli svo að örlítil froða myndist.
- Saxið möndlurnar frekar smátt og setjið saman við sykurinn.
- Penslið kökurnar með eggjahvítunni alveg út á brúnir, stráið síðan möndlu/sykri ofan á alveg út á brúnina, gott er að hafa mikið af möndlum á kökunum.
- Hitið bakaraofn í 190 C, blástursofn í 180 C. Setjið í miðjan ofinn og bakið í um 10 mínútur eða þar til kökurnar hafa aðeins tekið lit, en þær eiga að vera ljósar.
Athugið: Ef kökurnar eru mjög þunnar verða um 150 stk. af þeirri stærð sem upp er gefin úr þessu deigi, en ef þær eru þykkari verða þær að sjálfsögðu færri.
Ensk Ávaxtakaka
250 g smjörlíki
4 stk. egg
280 g hveiti
1 tsk. vanilludropar
100 g suðusúkkulaði
100 g heslihnetur
200 g koktelber
50 g þurrkaðir appelsínubitar eða aðrir þurrkaðir ávextir heilar möndlur til skrauts
Aðferð
Vinnið vel saman sykur og smjörlíki, setjið egg saman við eitt í einu og skafið vel niður á milli, blandið svo hveiti og lyftidufti saman við. Saxið niður allt sem fer svo saman við, veltið upp úr hveiti og blandið vel og vinnið rólega saman. Setjið deigið í vel fitað form, raðið möndlum ofan á. Fitið formið með olíu eða smjöri. Setjið hveiti í formið og veltið því vel um. Hellið eins miklu og hægt er af hveitinu frá sem er laust í forminu. Bakið við 160-170° í ca. 80-90 mín. í ca. 21 cm formi. Ef kakan verður of dökk þegar hún er ekki tilbúin er gott að setja álpappír yfir í restina. Kakan er góð svona, en gott er að bleyta vel upp í henni með koníaki eða rommi, og gera það nokkrum sinnum.
Ef þessi kaka á að vera á jólaborði er best að vera búin að laga hana fyrir 1. desember. Bleyta þarf vel upp í kökunni og pakka henni vel inn á milli. Bleytið upp í henni svona 1-2 sinnum í viku. Gott er að bera fram þeyttan rjóma með kökunni.
Amerískar smákökur
1 bolli Ljóma smjörlíki
1 bolli sykur
1 bolli púðursykur
2 egg
1 tsk. vanillusykur
2 bollar hveiti
21/2 bolli haframjöl
1/2 tsk. salt
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
1 bolli muldar valhnetur
1/2 bolli kókosmjöl
200 g brytjað Síríus súkkulaði ( Konsum)
Aðferð
Þeytið saman Ljóma smjörlíki, sykur og púðursykur. Setjið síðan eitt og eitt egg í einu út í. Blandið þurrefnum saman og setjið smám saman út í hræruna og að lokum súkkulaði, kókosmjöl og hnetur. Setjið með teskeið á ofnplötu klædda smjörpappír. Bakið við 190°C í 10 mín. í miðjum ofni.