Allflestir eiga jólaskraut sem að þeir halda sérstaklega mikið uppá. Það getur verið uppáhalds vegna góðra jólaminninga sem skrautið tengist úr æsku, eða af því að amma eða afi áttu það en eflaust eru ástæðurnar eins margar og skrautið er fjölbreytt.
Jólavefur Júlla óskar eftir mynd/myndum af uppáhalds jólaskrautinu ykkar með stuttum texta t.d. ef að eigandinn veit hvað skrautið er gamalt, hvaðan það kom og svo framvegis og skemmtilegt að fá nokkur orð um afhverju það er uppáhalds og ef að skemmtilegt minning tengist því.
Nafn og staðsetning væri líka skemmtilegt.
Dæmi:
Þessi dásamlegi glerjólasveinn hékk alltaf á jólatrénu í minni æsku og fylgdi mér síðan þegar ég fór að búa. Ég man hvað ég gat setið lengi og horft á það. Þetta skraut er líklega frá c.a. 1955 – Jóhann Erlendsson Kópavogi.
Svo kemur undirsíða á Jólavefinn með öllum myndunum og frásögnunum og vonandi bætist við jafnt og þétt um komandi framtíð.
Sendið á julli@julli.is
Aðfangadagsmorgun, fjórði sunnudagur í aðventu 2023