Jólasveinarnir á svölum Kaupfélagshússins.

Í dag 10. desember kl 14 koma jólasveinarnir á svalir gamla Kaupfélagshússin á Dalvík.

Jólasveinarnir hafa komið á svalir Kaupfélagsins á Dalvík í tugi ára, ég er ekki búinn að fá það á hreint hvenær þeir byrjuðu, síðustu upplýsingar sem ég hef, er að þeir hafi byrjað fyrir 1960

Jólasveinarnir mæta alltaf kátir og hressir um miðjan desember ár hvert með epli í poka, fara upp á svalirnar, segja sögur og syngja öll jólalögin, allir taka undir, stórir sem smáir þegar söngnum líkur þá koma þeir niður til fjöldans og gefa öllum epli, eplin eru þau bestu sem maður hefur smakkað, svo er dansað kringum jólatréð, þetta eru dásamlegir kallar, allir sem einn. Það eru margskonar farartæki sem þeir nota blessaðir, fótgangandi, á vélsleðum, snjóbíl eða á dráttarvélum allt eftir árferðinu og færinu í hvert sinn.

Frá því að ég var í barnavagni þá hef ég alltaf farið að sjá jólasveinana á svölunum, fengið epli, nema eitt ár þá missti ég af þessari skemmtilegu og ómissandi uppákomu, en þá bjó ég í Reykjavík, ég verð að viðurkenna að mér leið hálf undarlega þennan dag, þegar ég vissi að jólasveinarnir væru að koma á svalirnar á Kaupfélaginu á Dalvík.

Júlíus Júlíusson

Júlíus Júlíusson er Dalvíkingur í húð og hár. Júlli hefur haldið úti Jólavef Júlla síðan 1999. Júlli er sælkeri og mataráhugamaður.

Tengdir Pistlar

Fleiri Pistlar

  • All Post
  • Jól

Nýir pistlar

Jólatréð sótt

23. desember, 2023/

Á hverju ári förum við saman tvær fjölskyldur til þess að sækja okkur lifandi jólatré í Hálsaskóg í Hörgárbyggð.…

Jólavefur Júlla

Jólin koma

Tilkynningar

  • All Post
  • Tilkynningar

Magasín vefurinn julli.is er lifandi vefur sem er til skemmtunar og fróðleiks. Hér má finna nánast allt sem tengist jólunum. Skrif um mat, uppskriftir, myndbönd, gagnrýni, hefðir og hugmyndir. Átthagavefur, fólkið, fréttir, fjöllin og fegurðin. Veður, Ráðgjöf, og fleira áhugavert. Fylgist með.

© 2024 Júlíus Júlíusson

Vefsíðugerð: webdew.is